Uppgötvaðu Ísland
Í Brautarholti í Selárdal, yst við sunnanverðan Arnarfjörð, bjó listamaðurinn með barnshjartað, Samúel Jónsson (1884-1969), einn þekktasti alþýðulistamaður á Íslandi. Í Brautarholti í Selárdal gefur að líta minjar af stórmerkilegri listiðkun hans og húsagerð sem vekur jafnan mikla athygli og aðdáun þeirra er staðinn sækja heim.
Samúel málaði mikið sem ungur maður, en ferill stærri verka hans hófst þegar hann reisti sér kirkju með laukturni á landareign sinni. Það gerði hann þegar sóknarnefndin vildi ekki hafa altaristöflu sem hann hafði málað í Selárdalskirkju, en kirkjan átti gamla altaristöflu og hún fékk að vera. Samúel gerði einnig frægt líkan af Péturskirkjunni sem og líkan af indversku musteri, sem listasafn ASÍ tók að sér eftir andlát hans. Hann gerði einnig styttu af Leifi heppna og steypti upp eftirmynd af frægum gosbrunni sem er í Ljónagarðinum (Patio de los Leones) í Alhambra á Spáni.
Heimild: Sjá hérMynd: A.More.S
Selárdalskirkja Samúels er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
Kirkjur Íslands
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Engar einkunnir hafa verið birtar enn.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Selárdalskirkja Samúels er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.