Hraunskirkja
Kirkjur

Uppgötvaðu Ísland

Hraunskirkja

Ósk
Hef séð

Kirkjur Íslands

LandsvæðiVestfirðir
Byggingarár1885
Arkitekt / hönnuðurSigurður Jónsson
ByggingarefniTimber
ÞakefniWood shingles
TurnNei
FriðunFriðuð

Kirkjan í Hrauni stendur í Keldudal yst í sunnanverðum Dýrafirðinum. Hennar er fyrst getið í kirknatali Páls biskups Jónssonar og var hún þá helguð sælum Þorláki biskupi. Prestskyld var að Hrauni og tók prestur 4 merkur í kaup, en á síðari öldum var kirkjan annexía frá Söndum og frá Þingeyri síðan 1932.

Elsti varðveitti máldagi kirkjunnar er talinn gerður af Oddgeiri biskupi Þorsteinssyni um 1378. Kirkja var þó áður að Hrauni eða a.m.k. frá 12. öld. Í máldaganum átti kirkjan jörðina Saura sem var metin á 12 hundruð í jarðabók 1709. Aðrar jarðir eignaðist kirkjan ekki, en hún átti skógarítak í botni Dýrafjarðar og hálfan reka í Keflavík í Súgandafirði.

Núverandi kirkja sem reist var 1885 og bærinn standa enn. Þjóðminjasafn Íslands hefur látið gera upp kirkjuna og kirkjugarðinn í Hrauni. Talið er að 17. aldar hagleiksmaðurinn séra Hjalti Þorsteinsson í Vatnsfirði hafi smíðað predikunarstólinn í kirkjunni.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Lilia Lima

Sjá heimild Fleiri kirkjur á Vestfjörðum

Einkunnir og umsagnir

Hraunskirkja

Hraunskirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar