Dýrafjörður
Firðir

Uppgötvaðu Ísland

Dýrafjörður

Ósk
Hef séð
TegundFjörður
Lengd30 km
Breidd9 km
Mesta dýpi45 m
ÞéttbýliÞingeyri
SveitarfélagÍsafjarðarbær
AðgengiVegtenging

Dýrafjörður er fjörður á Vestfjarðakjálkanum og er á milli Arnarfjarðar og Önundarfjarðar. Dýrafjörður er þrjátíu og tveggja kílómetra langur og um níu kílómetrar að breidd yst. Hann er nú hluti af sveitarfélaginu Ísafjarðarbæ.
Tvö fell, sitt hvoru megin fjarðarins, setja svip sinn á hann, Sandafell (362 m) að sunnan og Mýrafell (312 m) að norðan. Í sameiningu loka þau fyrir sýn inn fjörðinn svo að úr fjarðarmynninu sést ekki inn í botn en þegar siglt er inn fjörðinn opnast dyr á milli þeirra. Þess hefur verið getið til að fjörðurinn hafi upphaflega dregið nafn af þessu og heitið Dyrafjörður en samkvæmt Landnámabók heitir hann eftir landnámsmanninum Dýra frá Sunnmæri.

Nokkurt undirlendi er við fjörðinn innanverðan og þar eru allnokkrir bæir, báðum megin fjarðar. Dálítill dalur er inn af fjarðarbotninum en þar er engin byggð lengur. Inn af dalbotninum er Gláma, víðáttumikið hálendissvæði þar sem áður var jökull.
Á suðurströnd Dýrafjarðar, undir Sandafelli, er þorpið Þingeyri. Þar var þingstaður og verslunarstaður frá fornu fari og kauptún fór að myndast þar á 19. öld. Skammt fyrir utan Þingeyri er Haukadalur þar sem Gísli Súrsson bjó. Frá Þingeyri liggur vegur um Hrafnseyrarheiði yfir í Arnarfjörð en hann er jafnan lokaður nokkurn hluta vetrar. Rætt hefur verið um að gera jarðgöng milli Dýrafjarðar og Arnarfjarðar. Frá norðurströnd fjarðarins liggur svo góður vegur norður yfir Gemlufallsheiði til Önundarfjarðar.
Við norðanverðan Dýrafjörð, utan við Mýrafell, er Núpur, gamalt höfðingjasetur og kirkjustaður. Þar var stofnaður skóli árið 1907 og varð hann síðar héraðsskóli og var starfræktur til 1992. Þar er nú sumarhótel. Kirkjur eru einnig á Mýrum við norðanverðan fjörðinn og á Hrauni í Keldudal, yst í sunnnanverðum firðinum, en sú síðarnefnda er ekki lengur sóknarkirkja því dalurinn er í eyði. Áður var kirkja á Söndum en hún var síðar færð til Þingeyrar.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Jón Ingi

Höfn
Veiði
Fuglalíf
Útsýnisstaður

Dýrafjörður er um 30 km langur fjörður á Vestfjörðum. Þingeyri stendur við fjörðinn og mesta mælda dýpi er rúmlega 45 metrar.

Síðast staðfest 16 september 2026 Heimild

Einkunnir og umsagnir

Dýrafjörður

Dýrafjörður er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar