Bíldudalskirkja
Kirkjur

Uppgötvaðu Ísland

Bíldudalskirkja

Ósk
Hef séð

Kirkjur Íslands

LandsvæðiVestfirðir
Byggingarár1906
Framkvæmdir hófust1905
Arkitekt / hönnuðurRögnvaldur Ólafsson
ByggingarefniReinforced concrete
ÞakefniCorrugated iron
Stærð12,64 × 8,87 m
TurnJá
FriðunFriðuð frá 1990

Kirkja hefur verið á Bíldudal frá 1906, en þá var kirkjustaðurinn fluttur þangað frá Otradal. Bíldudalskirkja var byggð á árunum 1905-1906 og vígð þann 2. desember 2006. Byggingin er teiknuð af Rögnvaldi Á. Ólafssyni og er steinsteypt. Kirkjan er hin reisulegasta og sómir sér vel í þorpinu.

Í Bíldudalskirkju eru ýmsir merkir gripir. Má þar meðal annars nefna fornan skírnarsá, kaleik og patínu úr silfri.

Eins má nefna þar tvær altaristöflur. Önnur er frá 1916, máluð af Þórarni B. Þorlákssyni listmálara, og sýnir Maríu við gröfina er Kristur sagði: „Kona, hví grætur þú?“ Hin er úr Otradalskirkju og frá 1737 og sýnir heilaga kvöldmáltíð. Í kirkjunni er einnig predikunarstóll frá 1699, með myndum af Kristi og postulunum.

 

Heimild: Sjá hér
Mynd: Helgi Halldórsson

Sjá heimild Fleiri kirkjur á Vestfjörðum

Einkunnir og umsagnir

Bíldudalskirkja

Bíldudalskirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar