Uppgötvaðu Ísland
Hvolsvöllur er þorp í Rangárþingi eystra. Það byggðist út úr Stórólfshvoli eftir að Kaupfélag Hallgeirseyjar stofnaði þar útibú árið 1930. Þar bjuggu 822 manns 1. desember 2007.
Tveimur árum eftir að útibú Kaupfélagsins var opnað var fyrsta íbúðarhúsið risið en það var kaupfélagsstjórahúsið Arnarhvoll. Sama ár voru byggðar brýr á Þverá, Affall og Ála. Þannig urðu allir flutningar um Rangárvallasýslu auðveldari og var ákveðið að flytja höfuðstöðvar Kaupfélagsins fráHallgeirsey að Hvolsvelli. Lítið var byggt um sinn nema frystihús og díselrafstöð. 1957 opnaði kaupfélagið kjörbúð við Austurveg en hún var þá ein af fyrstu slíkum á landinu.
Sýslumaður Rangárvallasýslu hefur haft sæti sitt á Hvolsvelli frá 1938 og var barnaskóli stofnaður í plássinu 1943.
Njáluslóðir, Lava Centre, Þórsmörk og nálægð við suðurströndina
Hvolsvöllur
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Þorpið er þekkt fyrir nálægð við Eyjafjallajökul.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.