Strandarvöllur
Golf

Uppgötvaðu Ísland

Strandarvöllur

Ósk
Hef séð
Fjöldi hola18
Par70
GolfklúbburGolfklúbbur Hellu

18 holu Golfvöllur í fallegu umhverfi

Strandarvöllur er mitt á milli Hellu og Hvolsvallar og um klukkustundar akstur frá Reykjavík. Völlurinn er
18 holur og er jafnt góður keppnisvöllur sem og fyrir styttra komna í golfíþróttinni. Völlurinn er einstaklega
þægilegur á fótinn.

Fjallahringurinn umvefur vallarstæðið og helst má þar nefna Heklu, Tindfjöll og Eyjafjallajökull Einnig sést til
Vestmannaeyja.

Karakter Strandarvallar

Það eru mikil LINKS áhrif í vellinum þó svo að hann liggi ekki að sjó eins og hinir eiginlegu linksvellir gera.
Melhólar móta völlinn austan síkis og gefa vellinum þetta strandvallayfirbragð. Slegið er yfir Strandarsíkið á
þremur brautum og völlurinn er umvafinn trjám og lággróðri og eru brautir og flatir ávallt harðar og með mikið
rennsli. Ekki eru margar sandgryfjur á Strandarvelli, sem hafa þá sérsöðu á Íslandi að vera með svartan sand,
en hólar austan síkis hremma bolta kylfinga. Völlinn má sjá inn á ghr.is þar sem flogið er yfir hann með þyrlu og
sést þá hver braut fyrir sig.

Golfskáli og fyrirtæki og hópar

Í golfskála er boðið uppá veitingar og golfvörur. Auðvelt er að koma með fyrirtæki og hópa í sveitarkyrrðina og
er áratuga reynsla heimamanna að taka móti gestum.

Stutt er í þjónustu svo sem gistingu, sundlaugar, söfn og aðra afþreyingu.

Nánari upplýsingar um verðskrá og þjónustu má finna á www.golf.is/ghr og www.ghr.is

Golfklúbbur Hellu – Strönd Rangárvöllum – sími 487 8208 – ghr@ghr.is

Heimild: Sjá hér
Mynd: Golfklúbbur Hellu

Strandarvöllur er 18 holu golfvöllur með par 70. Völlurinn er skráður hjá Golfklúbbur Hellu.
Keppnisvöllur
Driving range
Putting green
Kylfuleiga
Golfbílaleiga

Bóka rástíma

Vefur golfvallar

Síðast staðfest 2 september 2026 Heimild

Einkunnir og umsagnir

Strandarvöllur

Strandarvöllur er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar