Uppgötvaðu Ísland
Sveitarfélagið Norðurþing varð til árið 2006 við sameiningu fjögurra sveitarfélaga: Húsavíkurbæjar, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps. Nær það yfir rúmlega 4% landsins, frá Reykjahverfi í Suður Þingeyjarsýslu að Ormarsá austan við Raufarhöfn og upp fyrir Grímsstaði á Fjöllum, í Norður Þingeyjarsýslu. Þéttbýliskjarnarnir í sveitarfélaginu eru Húsavík, Kópasker og Raufarhöfn. Menning, mannlíf, listsköpun og saga einkennir Norðurþing. Talið er að sænski landkönnuðurinn Garðar Svavarsson, sem uppgötvaði fyrstur manna að Ísland væri eyja, hafi haft vetursetu á Húsavík fjórum árum áður en Ingólfur Arnarson nam landið. Margar af helstu náttúruperlum Íslands eru innan Norðurþings. Fyrst ber að nefna Þjóðgarðinn í Jökulsárgljúfrum, með sína stórbrotnu náttúru. Selfoss, Dettifoss, Hafragilsfoss og Réttarfoss mynda einstæða fossakeðju sem á fáa sína líka í veröldinni, en þar eru einnig Hljóðaklettar og Ásbyrgi. Að auki má nefna Æðafossa í Laxá, Grettisbæli í Öxarnúpi auk Melrakkasléttu sem er ævintýri líkast að heimsækja, enda náttúra hennar margbrotin. Fuglalíf er mjög fjölskrúðugt og fjöldi fuglaskoðunarstaða, t.d. í Kelduhverfi, Kotatjörn við Kópasker og á Rauðanúp á Melrakkasléttu, en þar er nyrsta súlubyggð á landinu auk þess sem hér er einn örfárra aðgengilegra varpstaða hennar. Hvalaskoðun og sjóstangveiði á Skjálfanda er spennandi afþreying en einnig er hægt að stunda silungsveiði á mörgum stöðum í Norðurþingi, t.d. Mýrarkvísl, Botnsvatni fyrir ofan Húsavík, Litluá í Kelduhverfi, Presthólalóni og í ýmsum vötnum á Melrakkasléttu. Ekki má gleyma selnum, en hann er t.d. hægt að sjá við Jökulsá, Kópasker og Melrakkasléttu. Söfn í Norðurþingi er mjög fjölbreytt, en þar eru m.a. byggðasöfn, hvalasafn og jarðskjálftasýning.
Heimild: www.nordurthing.is
Hvalaskoðun, Húsavíkurhöfn, söfn og nálægð við Mývatn og Dettifoss
Húsavík
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Bærinn er vinsæll áfangastaður ferðamanna.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.