Drífandi undir Eyjafjöllum á Suðurlandi
Fossar

Uppgötvaðu Ísland

Drífandi

Ósk
Hef séð

Fossar Íslands

Hæð70 m
LandsvæðiSuðurland

Drífandi er sérstæður foss undir vestanverðum Eyjafjöllum á Suðurlandi, skammt frá Seljalandsfossi og þjóðvegi 1. Fossinn fellur fram af háum klettavegg Eyjafjalla en vatnsmagnið getur verið breytilegt og því ber stundum lítið á honum.

Það sem gerir Drífanda sérstaklega áhugaverðan er samspil fossins og vindsins undir Eyjafjöllum. Svæðið er þekkt fyrir hvassviðri og þegar vindur stendur á klettunum getur hann feykt vatninu frá hamraveggnum áður en það nær alla leið niður til jarðar. Nafnið Drífandi á því einstaklega vel við fossinn.

Á veturna tekur fossinn á sig allt aðra mynd þegar vatnið frýs við klettana og mikil klakabrynja getur myndast. Drífandi getur því verið áhugaverður á mismunandi árstímum, en gæta þarf sérstakrar varúðar þegar hálka og ís eru á svæðinu.

Jarðfræðin við Drífanda er einnig athyglisverð. Í klettunum sjást bæði hraunlög og móberg. Hamraveggurinn er gamalt sjávarstandberg sem varð til þegar sjávarstaða var mun hærri við lok síðasta kuldaskeiðs og hafið braut sér leið inn í hlíðar Eyjafjalla. Flatlendið sem nú liggur milli fjallanna og sjávar myndaðist síðar þegar sjávarstaðan lækkaði.

Drífandi er rétt við þjóðveg 1 og því auðvelt að bæta honum við ferð um Suðurland. Lítið bílastæði er sunnan megin við þjóðveginn, við veðurskilti skömmu eftir afleggjarann að Seljalandsfossi, og þaðan er gott útsýni að fossinum.

Síðast staðfest 25. september 2026 Sjá heimild

Einkunnir og umsagnir