Vík í Mýrdal
Þéttbýlisstaðir

Uppgötvaðu Ísland

Vík í Mýrdal

Ósk
Hef séð

Vík í Mýrdal er þorp í Mýrdalshreppi í Vestur-Skaftafellssýslu og er syðsti þéttbýlisstaður á Íslandi og eina íslenska sjávarþorpið sem ekki hefur höfn. Róið var til fiskjar úr fjörunni fyrr á árum en sjósókn var mjög erfið þar sem engin hafnaraðstaða var og mjög brimasamt.

Öldum saman var enginn verslunarstaður á Suðurlandi frá Eyrarbakka austur á Papós en árið 1883 tóku bændurnir í Suður-Vík og Norður-Vík í Mýrdal sig saman um að panta varning frá Bretlandi og selja hann heima hjá sér. Þá stóð svo á að í kjölfar mikilla harðinda höfðu fátækir bændur í Skaftafellssýslu fengið peningaúthlutun og gátu nýtt féð til að kaupa varning í stað þess að fara um óravegu með sauðfé og aðra framleiðsluvöru til að leggja inn hjá kaupmönnum og taka út nauðsynjavöru, en slík ferðalög gátu tekið tvær eða þrjár vikur.

Víkurkirkja var reist á árunum 1932-1934 en prestur hafði setið í kauptúninu frá 1911. Kirkjan stendur hátt yfir þorpinu og er talin ein af fáum opinberum byggingum sem yrði örugg fyrir hamfaraflóði í kjölfarKötlugoss.

Læknissetur hefur verið í Vík frá 1915 en fyrstur til að sitja þar þar var raunar Sveinn Pálsson, læknir og náttúrufræðingur, sem þar bjó frá 1809-1833. Nú er heilsugæslustöð í Vík og þar er einnig dvalarheimili aldraðra.

Helstu atvinnuvegir eru verslun og þjónusta, bæði við bændur í Vestur-Skaftafellssýslu og í vaxandi mæli við ferðamenn, en þjóðvegur 1 liggur í gegnum Vík og margir vinsælir ferðamannastaðir eru í nágrenninu. Einnig er smávegis iðnaður í Vík. Íbúafjöldi 1. janúar 2011 var 295 en um 500 manns búa í öllum Mýrdalshreppi.

Heimild: Sjá hér

Vík í Mýrdal er syðsta þorp Íslands.

Íbúafjöldi · 2026740 íbúar
Tegund byggðarÞorp
Póstnúmer870
Hæð15 m yfir sjávarmáli
Ráðlagður tími3 klst.

Þekkt fyrir

Reynisfjöru, Dyrhólaey, Mýrdalsjökul og svarta sandströnd

Um Vík í Mýrdal

Vík í Mýrdal er þorp í Mýrdalshreppi í Vestur-Skaftafellssýslu og er syðsti þéttbýlisstaður á Íslandi og eina íslenska sjávarþorpið sem ekki hefur höfn. Róið var til fiskjar úr fjörunni fyrr á árum en sjósókn var mjög erfið þar sem engin hafnaraðstaða var og mjög brimasamt.

Öldum saman var enginn verslunarstaður á Suðurlandi frá Eyrarbakka austur á Papós en árið 1883 tóku bændurnir í Suður-Vík og Norður-Vík í Mýrdal sig saman um að panta varning frá Bretlandi og selja hann heima hjá sér. Þá stóð svo á að í kjölfar mikilla harðinda höfðu fátækir bændur í Skaftafellssýslu fengið peningaúthlutun og gátu nýtt féð til að kaupa varning í stað þess að fara um óravegu með sauðfé og aðra framleiðsluvöru til að leggja inn hjá kaupmönnum og taka út nauðsynjavöru, en slík ferðalög gátu tekið tvær eða þrjár vikur.

Víkurkirkja var reist á árunum 1932-1934 en prestur hafði setið í kauptúninu frá 1911. Kirkjan stendur hátt yfir þorpinu og er talin ein af fáum opinberum byggingum sem yrði örugg fyrir hamfaraflóði í kjölfarKötlugoss.

Læknissetur hefur verið í Vík frá 1915 en fyrstur til að sitja þar þar var raunar Sveinn Pálsson, læknir og náttúrufræðingur, sem þar bjó frá 1809-1833. Nú er heilsugæslustöð í Vík og þar er einnig dvalarheimili aldraðra.

Helstu atvinnuvegir eru verslun og þjónusta, bæði við bændur í Vestur-Skaftafellssýslu og í vaxandi mæli við ferðamenn, en þjóðvegur 1 liggur í gegnum Vík og margir vinsælir ferðamannastaðir eru í nágrenninu. Einnig er smávegis iðnaður í Vík. Íbúafjöldi 1. janúar 2011 var 295 en um 500 manns búa í öllum Mýrdalshreppi.

Heimild: Sjá hér

Þjónusta í byggðinni

Matvöruverslun
Eldsneyti
Veitingastaðir
Kaffihús
Gisting
Tjaldsvæði
Sundlaug
Rafhleðsla
Almenningssamgöngur
Upplýsingamiðstöð
Heimild Síðast yfirfarið: 9. september 2026

Einkunnir og umsagnir

Vík í Mýrdal

Þorpið er vinsæll áfangastaður ferðamanna.

Algengar spurningar

Hvar er Vík í Mýrdal?
Vík í Mýrdal er á Suðurlandi, við suðurströnd Íslands.
Hvað er Vík í Mýrdal þekkt fyrir?
Þorpið er þekkt fyrir svartar sandstrendur og Reynisdranga.
Er Vík vinsæll ferðamannastaður?
Já, Vík er einn vinsælasti áfangastaður Suðurlands.
Eru veitingastaðir og gisting í Vík?
Já, þar er góð þjónusta fyrir ferðamenn.
Er Vík nálægt náttúruperlum?
Já, margar þekktar náttúruperlur eru í nágrenninu.
Er Vík í Mýrdal við Hringveginn?
Já, þorpið liggur við Hringveg 1.