Dyrhólaey
Eyjur

Uppgötvaðu Ísland

Dyrhólaey

Ósk
Hef séð
TegundNes
ByggðNei

Dyrhólaey er móbergsstapi í Mýrdal á suðurströnd Íslands. Hún dregur nafn sitt af því að gat hefur myndast á þessum um það bil 120 metra háa skaga sem sjórinn flæðir í gegnum. Klettatanginn sem skagar fram úr eynni og gatið er í gegnum nefnist Tóin. Dyrhólaey er einnig nefnd Portland af sjómönnum. Hún var lengi syðsti oddi fastalands Íslands en eftir Kötlugosið 1918 hefur Kötlutangi verið syðsti oddi landsins. Í eynni er mikil lundabyggð. Dyrhólaey var friðlýst árið 1978.

Undan Dyrhólaey eru allnokkrir drangar úti í sjónum. Þekktastur þeirra er Háidrangur, sem er þverhníptur og 56 metrar á hæð. Hann kleif Eldeyjar-Hjalti Jónsson fyrstur manna árið 1893 að beiðni bænda í Mýrdal og rak þá nagla í bergið og setti keðjur á nokkrum stöðum, svo að eftir það var hægt að nýta dranginn til fuglatekju. Aðrir drangar eru Lundadrangur, Mávadrangur, Kambur og Kvistdrangur.

Árið 1910 var byggður viti á eynni, hann var endurbyggður 1927. Upphaflega hafði vitavörðurinn fasta búsetu á staðnum. Dyrhólaey og drangarnir í nágrenni hennar er mikil paradís fuglaskoðara. Hótel Dyrhólaey er skammt frá Vík í Mýrdal.

Heimild: Sjá hér

Aðgengileg
Merktar gönguleiðir
Fuglavarp
Sjávarhamrar
Viti

Jarðfræði

Dyrhólaey er eldbrunnið nes þar sem hafið hefur rofið bergið og skapað stórt náttúrulegt klettahlið.

Náttúra

Svæðið býður upp á sjávarbjörg, útsýni yfir suðurströndina og fjölbreytt fuglalíf.

Besti árstími

Allt árið

Heimsóknarráð

Fylgið lokunum og merkingum, sérstaklega á varptíma fugla og í slæmu veðri.

Síðast staðfest 16 september 2026

Einkunnir og umsagnir

Dyrhólaey

Eitt þekktasta náttúrusvæði landsins.