Tjaldsvæðið í Skaftafelli
Tjaldstæði

Uppgötvaðu Ísland

Tjaldstæðið í Skaftafelli

Ósk
Hef séð

Tjaldsvæði

Tjaldsvæðið í Skaftafelli er opið frá 1. maí til 30. september. Gestir eru beðnir um að gera vart við sig í þjónustumiðstöð áður en tjaldað er, eða strax að morgni ef komið er eftir lokun. Vakin er athygli á því að hvorki er hægt að leigja tjöld né annan búnað.
Sími: 470 8300, Netfang: skaftafell@vjp.is
Í Skaftafelli eru stæði fyrir um 600 tjöld. Stæði eru ekki tekin frá nema að um 40 manna hópa eða stærri sé að ræða. Sérstök flöt er ætluð fyrir húsbíla, hjólhýsi og fellihýsi. Þar eru tenglar fyrir rafmagn.

Salernisaðstaða er við þjónustumiðstöð og í tveimur þjónustuhúsum á tjaldsvæðinu. Þar eru líka sturtur. Nota þarf 50 kr. mynt í sturturnar og því er gott að hafa næga mynt tiltæka.
Þvottavél og þurrkari er í þvottahúsi við þjónustumiðstöð.
Enginn sérstök eldunaraðstaða er fyrir gesti tjaldsvæðis. Þó eru vaskar undir skyggni við þjónustumiðstöð sem og grill sem gestir mega nota.
Þráðlaust internet er á tjaldsvæðinu. Kaupa þarf aðgang í þjónustumiðstöð.

Verðskráin gildir á tjaldsvæðum þjóðgarðsins í Skaftafelli, Ásbyrgi og Vesturdal

 Gisting á tjaldsvæði (verð per. nótt)
(gistináttaskattur innifalinn)  
 Fullorðnir  1.200 kr.  Börn 13-16 ára (í fylgd fullorðinna)  600 kr.  Börn 12 ára og yngri  0 kr.     Önnur þjónusta   Sturta (hvert skipti) 400 kr. Rafmagn (1 sólarhringur) 750 kr. Þvottavél 500 kr. Þurrkari 500 kr. Kortabæklingar 500 kr. Bæklingar 300 kr. Kynningarbæklingar 150 kr. Veitt aðstoð (klst.): 10.000 kr.

Hópaafsláttur: 10 manna hópur eða fleiri: 10% afsláttur af gistingu, utan gistináttagjalds, ef staðgreitt. Skilyrði er að hópstjóri greiði fyrir allan hópinn.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Vatnajökulsþjóðgarður

Aðstaða

Salerni
Sturtur
Þvottaaðstaða
Rafmagn
Drykkjarvatn

Leyfileg gisting

Tjöld
Húsbílar
Campervans
Hjólhýsi

Opnun, rými og verð

Fjöldi stæða400
Stæði með rafmagni100
Opið allt áriðJá
OpnunartímabilOpið allt árið.
Bókun í boðiNei

Nánari upplýsingar

Tjaldsvæðið rúmar um 400 tjöld. Sérsvæði er fyrir húsbíla og hjólhýsi með rafmagnstengingum. Salerni, sturtur, þvottaaðstaða og drykkjarvatn eru á svæðinu.

Einkunnir og umsagnir

Tjaldstæðið í Skaftafelli

Góð aðstaða í stórbrotnu umhverfi.

Algengar spurningar