Öræfajökull
Jöklar

Uppgötvaðu Ísland

Öræfajökull

Ósk
Hef séð
TegundJökull yfir eldstöð
LandsvæðiSuðurland
Besti árstímiSumar
Tengt eldfjallÖræfajökull

Öræfajökull er eldkeila á Suðausturlandi (Skaftafellssýslu).[1] Yfir fjallinu er jökulhetta þ.e. Öræfajökullinn sjálfur, sem er jafnframt syðsti hluti Vatnajökuls. Hann fyllir stóra öskju efst á fjallinu. Margir skriðjöklar skríða út frá jökulhettunni niður fjallshlíðarnar og um dali við fjallsræturnar. Meðal þeirra eru Svínafellsjökull, Virkisjökull, Kotátjökull, Kvíárjökull og Hrútárjökull. Á norðausturhlið fjallsins er Hvannadalshnúkur, hæsti tindur Íslands, 2.110 m. Öræfajökull er að hluta innan þjóðgarðsins íSkaftafelli sem markast af Öræfajökli í austri og Skaftafellsjökli í vestri.

Öræfajökull er megineldstöð og hefur gosið tvisvar á sögulegum tíma; fyrst 1362 þegar Litlahérað var lagt í eyði, og síðan minna gosi 1727. Mikið tjón varð í báðum gosunum og þeim fylgdi öskufall og jökulhlaup.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Sveinn Ingi

Jökulhetta
Skriðjöklar
Jökull yfir eldstöð
Virkt eldfjall undir jökli
Útsýnisstaður
Gönguleið
Aðgengilegur
Mælt með leiðsögn
Árstíðabundið aðgengi

Öryggi

Ferðir hátt á Öræfajökul eru krefjandi jökla- og fjallamennska og eiga aðeins við fólk með rétta þekkingu, búnað og aðstæður.

Jarðfræði

Öræfajökull er jökulklædd eldstöð í Vatnajökli. Jökulís, eldvirkni og rof hafa mótað mjög bratt og stórbrotið fjalllendi.

Besti árstími

Sumar

Heimsóknarráð

Flestir gestir skoða Öræfajökul frá láglendi eða nálægum skriðjöklum.

Síðast staðfest 16 september 2026

Einkunnir og umsagnir

Öræfajökull

Öræfajökull er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar