Uppgötvaðu Ísland
Framkvæmdir hófust árið 1997 en stöðin komst í fullan rekstur árið 2000. Þetta varð fimmta stórvirkjun Landsvirkjunar en áður höfðu verið byggðar virkjanir við Sigöldu og Hrauneyjafoss í Tungnaá, Búrfell í Þjórsá, og neðanjarðarvirkjun í Blöndu.
Sultartangastöð nýtir vatn er rennur úr Sultartangalóni sem myndaðist á árunum 1982 – 1984 þegar Þjórsá og Tungnaá voru stíflaðar austan undir Sandafelli, u.þ.b. kílómetra ofan ármótanna. Sultartangastíflan er lengsta stífla á Íslandi. Á byggingartíma Sultatangastöðvar var stíflan hækkuð um einn metra og við það óx lónið úr 18 í 20 km².
Aðrennslisgöng liggja úr lóninu í gegnum Sandafell að jöfnunarþró suðvestan í fellinu. Við enda þróarinnar er stöðvarinntak eða aðhlaupshús og þaðan liggja stálpípur að stöðvarhúsinu. Aflvélar eru tvær af Francis gerð, hvor um sig 60 MW.
Frárennslisskurður liggur frá stöðvarhúsinu í rótum Sandafells, um Álftafell og niður á Hafið. Skurðurinn sveigir í stefnu meðfram farvegi Þjórsár og fylgir honum að stað 800 m ofan við veitustíflu Búrfellsvirkjunar þar sem hann liggur út í farveg Þjórsár.
Heimild: Sjá hérMynd: Anton Stefánsson
Sultartangastöð er áhugaverður staður á Íslandi sem vert er að heimsækja.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Engar einkunnir hafa verið birtar enn.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Sultartangastöð er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.