Hjálparfoss
Fossar

Uppgötvaðu Ísland

Hjálparfoss

Ósk
Hef séð

Fossar Íslands

Fjöldi falla2
Tegund fossTwo-stage waterfall
LandsvæðiSuðurland

Hjálparfoss er foss neðarlega í Fossá í Þjórsárdal. Fossinn er tvöfaldur og eru stuðlabergsmyndanir í kringum hann. Nafnið kom til þegar ferðir yfir Sprengisand voru tíðari og ferðalangar fundu gras handa hrossum sínum og hægt var að brynna þeim á annað en jökulvatn.

Heimild: Sjá hér

Fossá (með Háafossi) fellur fram Þjórsárdal. Hún sameinast Rauðá (rennur um Gjána) skammt frá Skeljafelli og Reykholti ofan við miðjan dalinn og liðast milli gervigíganna á dalbotninum. Slíkir hólar mynast við gufustreymi og -sprengingar þegar hraun rennur í stöðuvatn eða mýrlendi.

Þjóðvegurinn um dalinn liggur yfir brú á Fossá. Skammt neðan við hana (sjá leiðarmerkingar) liggur malarvegur að einum þekktasta áningarstaðnum í Þjórsárdal: Hjálparfossi. Þar fellur Fossá í tveimur áþekkum kvíslum fram af hraunbrún ofan í djúpan hyl í fallega gróinni hvilft með stuðlabergsklettum við fossana.

Stuðlabergið myndaðist líklega við nokkuð snögga vatnskælingu Þjórsárdalshraunsins þegar það hafði runnið um Gjána og niður um dalinn, fyrir um það bil 4000 árum, þó án þess að ná að mynda gervigíga eins og ofar í honum.

Örnefnið Hjálp er haft um gróið svæði austan við Fossá, nokkru neðan við Hjálparfoss.

Heimild: Sjá hér 
Mynd: Anton Stefánsson

Aðgengi

BílastæðiJá
ErfiðleikastigEasy

Jarðfræði

Hjálparfoss er tvískiptur foss í Þjórsárdal nálægt ármótum Þjórsár og Fossár. Merki um eldgos í Heklu eru áberandi í landslaginu við fossinn.

Síðast staðfest 8. september 2026 Sjá heimild

Einkunnir og umsagnir

Hjálparfoss

Fossinn er vinsæll meðal ferðamanna.

Algengar spurningar