Kárahnjúkar

Ósk
Séð

Kárahnjúkavirkjun er 690 MW vatnsaflsvirkjun á hálendi Íslands norðan Vatnajökuls. Virkjunin sér álveri Alcoa í Reyðarfirði fyrir raforku. Virkjaðar eru jökulár VatnajökulsJökulsá á Dal (Jökulsá á Brú), Jökulsá í Fljótsdal, Kelduá og þrjár þverár hennar. Mannvirkið sem slíkt hefur verið nefnt stærsta framkvæmd Íslandssögunnar. Undirbúningur að verkinu hófst árið 1999, framkvæmdir hófust 2002 og loks var virkjunin formlega gangsett 30. nóvember 2007. Til verksins voru fengnar þúsundir erlendra iðnaðarmanna, og var aðalverktakafyrirtækið, Impregilo, ítalskt. Um virkjunina og byggingu álversins hafa staðið miklar deilur milli þeirra sem eru á móti spillingu umhverfisins og annarra sem telja uppbygginguna jákvæða. Heildarkostnaður við byggingu virkjunarinnar var 133 milljarðar kr. á verðlagi sept. 2007.

Heimild: Sjá hér

Mynd: Íslandsmyndir.is

Svæðið er umdeilt en stórbrotið.

Austurland

1,484 skoðað

Kárahnjúkar

Mikið mannvirki í náttúrunni.

Algengar spurningar

Hvar er Kárahnjúkavirkjun?
Kárahnjúkavirkjun er á Austurlandi.
Hvaða tegund virkjunar er Kárahnjúkavirkjun?
Hún er vatnsaflsvirkjun.
Er Kárahnjúkavirkjun í rekstri?
Já, virkjunin er í rekstri.
Hvaða orkulind nýtir Kárahnjúkavirkjun?
Hún nýtir vatnsafl.
Er Kárahnjúkavirkjun aðgengileg almenningi?
Nei, hún er almennt ekki opin almenningi.