Patreksfjörður

Ósk
Séð
Patreksfjörður (Einnig nefnt Patró á talmáli) er þorp í Vesturbyggð við samnefndan fjörð sem er syðstur Vestfjarða. Íbúar eru um 700 manns. Aðalatvinnugreinar eru sjávarútvegur, fiskvinnsla og þjónusta.
Fjörðurinn heitir eftir heilögum Patreki, verndardýrlingi Írlands. Landnámsmaðurinn Örlygur Hrappsson sem var frá Suðureyjum hét á hann og nefndi fjörðinn eftir honum.
Áður var verslunarstaðurinn á Vatneyri, sem er lág eyri þar sem eitt sinn var stöðuvatn eða sjávarlón. Lónið var grafið út árið 1946 og Patrekshöfn gerð þar. Núverandi byggð er hins vegar að mestu leyti á Geirseyri og var byggðin stundum kölluð Eyrarnar í fleirtölu. Vatneyri/Geirseyri var verslunarhöfn á tímum einokunarverslunarinnar. Vísir að þorpi tók að myndast með fyrstu þurrabúðunum þar um miðja 19. öld.

Patreksfjörður liggur á Vestfjörðum.

Vestfirðir

700 Manns

1,532 skoðað

Patreksfjörður

Þorpið er vinsæll áfangastaður ferðamanna.

Algengar spurningar

Hvar er Patreksfjörður?
Patreksfjörður er á Vestfjörðum, við samnefndan fjörð.
Hvað einkennir Patreksfjörð?
Bærinn er þjónustumiðstöð sunnanverðra Vestfjarða.
Er höfn í Patreksfirði?
Já, þar er virk fiskihöfn.
Er Patreksfjörður vinsæll ferðamannastaður?
Já, sérstaklega yfir sumartímann.
Eru náttúruperlur nálægt Patreksfirði?
Já, Látrabjarg og Rauðisandur eru í nágrenni.
Er þjónusta fyrir ferðamenn í Patreksfirði?
Já, þar er gisting, veitingastaðir og verslun.