Uppgötvaðu Ísland
Núverandi Bjargtangaviti er annar í röðinni. Sá fyrri, núverandi Hvaleyrarviti, var reistur þar árið 1913 en fluttur brott árið 1948 þegar yngri Bjargtangavitinn var tekinn í notkun. Bjargtangavitinn, sem Axel Sveinsson verkfræðingur og Einar Stefánsson húsateiknari hönnuðu, er einn hinna svokölluðu brúarvita því að bogadregin framhliðin og innbyggt ljóshúsið þykja í sameiningu minna á brú á skipi. Vitinn er 5,6 m á hæð, gerður úr steinsteypu og var upphaflega húðaður með ljósu kvarsi en hefur verið kústaður með hvítu þéttiefni. Gasljós var í vitanum fram til 1961 að hann var rafvæddur. Kirkjuhólsviti og Bjargtangaviti eru byggðir eftir sömu teikningu og svipar því mikið saman.
Heimild: Sjá hérMynd: Anton Stefánsson
Fyrsti vitinn á Látrabjargi var reistur árið 1913. Núverandi Bjargtangaviti var byggður árið 1948.
Bjargtangaviti
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Bjargtangaviti er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.