Akranesviti
Vitar

Uppgötvaðu Ísland

Akranesviti

Ósk
Hef séð
Byggingarár1944
Fyrst kveikt1944
TegundLandviti
Turnhæð19,2 m
LjóseinkenniFl(2)WRG 20s
Drægni15 sjómílur
ByggingarefniSteinsteypa

Tveir vitar standa utarlega á Skipaskaga. Sá eldri er utarlega á Syðriflös, steinsteyptur turn, byggður árið 1918. Ljóshús hans hefur verið endurnýjað og er ekki upprunalegt og þessi viti, sem hannaður er af Thorvald Krabbe verkfræðingi, hefur ekki verið í notkun síðan árið 1947 að kveikt var á nýrri vitanum sem stendur skammt ofan við flösina.

Nýrri Akranesvitinn, sem byggður var á árunum 1943–1944 eftir teikningum Axels Sveinssonar verkfræðings, en tekinn í notkun 1947, er 22,7 m á hæð, sívalur kónískur turn úr steinsteypu og ljóshúsið er sænskt. Stoðveggir, átta talsins, ganga út frá sökkli. Vitinn var húðaður með ljósu kvarsi í upphafi en hefur nú verið kústaður með ljósu þéttiefni.

Ljóstæki eru ensk og vegna seinni heimsstyrjaldarinnar varð dráttur á afhendingu þeirra sem seinkaði því að vitinn yrði tekinn í notkun. Gasljós var í vitanum í byrjun, magnað með 500 mm katadíoptrískri linsu, en árið 1956 var hann rafvæddur.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Sverrir

Virkur viti
Opið gestum
Hægt að fara upp í turn
Útsýnisstaður
Aðgengilegt allt árið

Saga

Núverandi Akranesviti var reistur 1943–1944 eftir teikningu Axels Sveinssonar verkfræðings. Vitinn er 19,2 metra hár og er opinn gestum.

Síðast staðfest 16 september 2026 Heimild

Einkunnir og umsagnir

Akranesviti

Akranesviti er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar