Gróttuviti
Vitar

Uppgötvaðu Ísland

Gróttuviti

Ósk
Hef séð
Byggingarár1947
Fyrst kveikt1947
TegundLandviti
Turnhæð23 m
Ljóshæð24 m
LjóseinkenniFl(3)WRG 20s
Drægni15 sjómílur
LiturHvítur
AðgengiGönguleið á fjöru

Fyrst var byggður viti í Gróttu árið 1897 að fyrirsögn starfsmanna dönsku vitastofnunarinnar. Núverandi viti var reistur hálfri öld síðar, árið 1947, sívalur kónískur turn úr steinsteypu með ensku ljóshúsi, 24 m að hæð, hannaður af Axel Sveinssyni verkfræðingi. Upphaflega var vitinn húðaður utan með ljósu kvarsi en hefur nú verið kústaður með hvítu þéttiefni.

Linsan sem sett var í vitann frá 1897 er enn í notkun í Gróttuvita. Gastæki var sett í vitann er hann var tekinn í notkun en hann var rafvæddur árið 1956.

Vitavörður var búsettur í Gróttu frá 1897 til 1970. Vitaverðirnir voru aðeins tveir, Þorvarður Einarsson og Albert sonur hans. Vitavarðarhúsin hafa nú verið gerð upp og eru í eigu Seltjarnarnesbæjar.

Heimild: Sjá hér
Mynd Sunna Wium

Virkur viti
Sjálfvirkur
Sögulegur
Friðaður
Opið gestum
Útsýnisstaður

Saga

Fyrsti vitinn í Gróttu var reistur árið 1897. Núverandi Gróttuviti var byggður árið 1947. Grótta er eyja við Seltjarnarnes sem tengist landi á fjöru.

Aðgengi

Grótta er á eyju sem er aðeins aðgengileg gangandi á fjöru. Svæðið er lokað hluta árs vegna fuglaverndar.

Síðast staðfest 16 september 2026 Heimild

Einkunnir og umsagnir

Gróttuviti

Mjög vinsæll göngustaður.

Algengar spurningar