Uppgötvaðu Ísland
Náttúrulaugar Íslands
Lítill fótapottur í fjörunni rétt hjá Gróttu.
Útilistaverk Ólafar Nordal (fædd 1961) er gert úr heilum grágrýtissteini sem í er sorfin hringlaga fótbaðs- eða vaðlaug.
Laugin er lýst upp með mildu rafljósi að innanverðu og í hana rennur stöðugt óblandað, forkælt jarðhitavatn úr borholum Seltjarnarness, en það hefur einstaka samsetningu og jafnvel lækningamátt.
Ólöf er fjölhæfur listamaður sem hefur unnið með margs konar efni. Viðfangsefni sín sækir hún gjarnan í þjóðlega arfleifð og menningarleg minni sem hún setur í nútímalegt samhengi. Náttúran og tengsl okkar við landið eru henni einnig hugleikin.
Í Kviku vísar hún til fornrar laugarhefðar Íslendinga um leið og hún hvetur fólk til að upplifa hita og kraft jarðar með því að fara úr sokkum og skóm og verða eitt með náttúrunni í fjöruborðinu. Þannig verður það þátttakendur í eins konar gjörningi „á mörkum byggðar og náttúru, lands og sjávar, himins og jarðar”, segir listakonan. „Með heita fætur streymir blóðið um kroppinn, líkamleg og andleg skynjun vex, næmi fyrir umhverfinu vaknar og tengsl við náttúruöflin myndast.”
Heimild: Sjá hérMynd: Anton Stefánsson
Kvika er við strandstíginn á Seltjarnarnesi nálægt Gróttu.
Varúð á blautum eða hálum strandklöppum.
Kvika
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Kvika er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.