Keflavík

Ósk
Séð

Keflavík er um 13.000 manna bær austan megin á Miðnesi á Reykjanesskaga og heyrir undir sveitarfélagið Reykjanesbæ.

Bærinn dregur nafn sitt af samnefndri vík, sem liggur á milli Hólmsbergs að norðan og Vatnsness að sunnan og gengur til vesturs inn úr Stakksfirði. Víkin er opin á móti austri og þótti aldrei gott skipalægi. Hún var samt grundvöllur þeirrar verslunar sem þar þróaðist frá 17. öld og varð grundvöllur bæjarins.

Keflavíkurjörðin heyrði undir Rosmhvalaneshrepp frá fornu fari. Með vexti kauptúnsins á seinni hluta 19. aldar reyndist landrými of lítið fyrir byggðina. 1891 var löggilt stækkun á verslunarlóðinni til suðurs, í landi Njarðvíkurhrepps, sem stofnaður hafði verið tveimur árum áður. Keflavík var þannig í tveimur hreppum samtímis og hélst svo til ársins 1908.

Hinn 15. júní það ár var Rosmhvalaneshreppi skipt upp. Varð nyrðri hlutinn að Gerðahreppi en Keflavíkurjörðin í suðri var sameinuð Njarðvíkurhreppi undir heitinu Keflavíkurhreppur. Njarðvíkurhreppur klauf sig aftur frá hreppnum 1. janúar 1942.

Keflavík fékk kaupstaðarréttindi 22. mars 1949. Hinn 11. júní 1994 sameinaðist Keflavík Njarðvíkurkaupstað og Hafnahreppi undir nafninu Reykjanesbær.

Á Keflavíkurflugvelli hefur verið mönnuð veðurathugunarstöð Veðurstofunnar síðan 1952.

Heimild: Sjá hér

Keflavík er strandbær á Reykjanesskaga.

Suðvesturland

13.000 Manns

1,529 skoðað

Keflavík

Bærinn er nálægt Keflavíkurflugvelli og býður upp á fjölbreytta þjónustu.

Algengar spurningar

Hvar er Keflavík?
Keflavík er á Reykjanesi, suðvestan við Reykjavík.
Hvað er Keflavík þekkt fyrir?
Bærinn er þekktur fyrir nálægð við alþjóðaflugvöllinn.
Er Keflavík hluti af Reykjanesbæ?
Já, Keflavík er hluti af sveitarfélaginu Reykjanesbær.
Eru veitingastaðir og verslanir í Keflavík?
Já, þar er fjölbreytt þjónusta.
Er Keflavík góður upphafsstaður fyrir Reykjanes?
Já, bærinn er vel staðsettur til að skoða svæðið.