Þéttbýlisstaðir

Uppgötvaðu Ísland

Brekkuþorp

Ósk
Hef séð

Í Brekkuþorpi er allt að finna sem þurfa þykir í mannlegu samfélagi. Þar er kirkja, skóli, ferðamannaverslun, póstafgreiðsla, kaffistofa og þaðan er rekin útgerð og fiskeldi.

Að Asknesi er hægt að sjá leifar af gamalli hvalstöð, sem reist var af Norðmönnum um aldamótin 1900 og var hún sú stærsta í heiminum á þeim tíma. Þegar umsvif stöðvarinnar voru í hámarki unnu þar um 200 manns en í dag búa aðeins um 40 manns í Mjóafirði öllum.

Samgöngur við Mjóafjörð geta verið erfiðar yfir vetrarmánuðina en Flóabáturinn Anný (s, 476 0005 og 853 3004) gengur allt árið, á milli Brekkuþorps og Neskaupstaðar, tvisvar í viku. Góður vegur liggur um Slenjudal og yfir Mjóafjarðarheiði, en vetraropnun er þar ekki regluleg. Vegur er svo út með firðinum að norðanverðu, allt út að Dalatanga.

Mikið berjaland er í Mjóafirði en frægastur er hann líklega fyrir mikla kyrrð og fallega fossa. 

Heimild: Sjá hér

Brekkuþorp og Mjóifjörður liggja á Austurlandi.

Tegund byggðarÞorp
Póstnúmer715
Hæð5 m yfir sjávarmáli
Ráðlagður tími1–2 klst.

Þekkt fyrir

Mjóafjörð, kyrrlátt umhverfi, sjávarsíðuna og afskekkta austfirska náttúru

Um Brekkuþorp

Í Brekkuþorpi er allt að finna sem þurfa þykir í mannlegu samfélagi. Þar er kirkja, skóli, ferðamannaverslun, póstafgreiðsla, kaffistofa og þaðan er rekin útgerð og fiskeldi.

Að Asknesi er hægt að sjá leifar af gamalli hvalstöð, sem reist var af Norðmönnum um aldamótin 1900 og var hún sú stærsta í heiminum á þeim tíma. Þegar umsvif stöðvarinnar voru í hámarki unnu þar um 200 manns en í dag búa aðeins um 40 manns í Mjóafirði öllum.

Samgöngur við Mjóafjörð geta verið erfiðar yfir vetrarmánuðina en Flóabáturinn Anný (s, 476 0005 og 853 3004) gengur allt árið, á milli Brekkuþorps og Neskaupstaðar, tvisvar í viku. Góður vegur liggur um Slenjudal og yfir Mjóafjarðarheiði, en vetraropnun er þar ekki regluleg. Vegur er svo út með firðinum að norðanverðu, allt út að Dalatanga.

Mikið berjaland er í Mjóafirði en frægastur er hann líklega fyrir mikla kyrrð og fallega fossa. 

Heimild: Sjá hér

Þjónusta í byggðinni

Gisting
Höfn
Síðast yfirfarið: 9. september 2026

Einkunnir og umsagnir

Brekkuþorp og Mjóifjörður

Svæðið er þekkt fyrir kyrrð og náttúrufegurð.

Algengar spurningar

Hvar er Brekkuþorp í Mjóafirði?
Brekkuþorp er lítið þorp í Mjóafirði á Austurlandi.
Hvað einkennir Mjóafjörð?
Fjörðurinn er einn af afskekktustu fjörðum landsins.
Er Brekkuþorp lítið byggðarlag?
Já, þetta er mjög lítið og rólegt þorp.
Er aðgengi að Mjóafirði gott?
Aðgengi er um fjallveg eða jarðgöng.
Er svæðið vinsælt meðal náttúruunnenda?
Já, svæðið er vinsælt fyrir kyrrð og náttúru.
Er þjónusta fyrir ferðamenn í Brekkuþorpi?
Mjög takmörkuð þjónusta er á staðnum.