Uppgötvaðu Ísland
Neskaupstaður er um 1500 manna bær við Norðfjörð á Austfjörðum og sá fjölmennasti í sveitarfélaginu Fjarðabyggð.
Bærinn var gerður að sérstökum hreppi, Neshreppi, árið 1913 en hafði fram að því heyrt undir Norðfjarðarhrepp. Neshreppur fékk kaupstaðarréttindi 1. janúar 1929 og hét eftir það Neskaupstaður. Norðfjarðarhreppur sameinaðist Neskaupstað á ný 11. júní1994, að þessu sinni undir merkjum Neskaupstaðar. Hinn 7. júní 1998 sameinaðist Neskaupstaður Eskifjarðarkaupstað og Reyðarfjarðarhreppi undir nafninu Fjarðabyggð
Bæjarstæðið er merkilegt fyrir þær sakir að vera mjög langt, þar eð bærinn liggur meðfram sjónum og nær um það bil 100 metra upp í hlíðina fyrir ofan á 6 km löngum kafla.
Í bænum er íþróttafélagið Þróttur sem hefur náð hvað bestum árangri í blaki. Fjarðabyggð er með sameiginlegt lið í 1. deild karla í knattspyrnu. Þar er einnig golfklúbburinn GN (Golfklúbbur Norðfjarðar). Klúbburinn starfrækir 9 holu golfvöll, Grænanesvöll. Völlurinn er á Grænanesbökkum við Norðfjarðará.
Heimild: Sjá hér
Norðfjörð, sjávarútveg, fjöll, Rauðubjörg og náttúru Austfjarða
Neskaupstaður
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Bærinn er miðstöð atvinnulífs á svæðinu.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.