Uppgötvaðu Ísland
Mjóifjörður er 18 kílómetra langur fjörður á milli Norðfjarðarflóa og Seyðisfjarðar. Eins og nafnið gefur til kynna er fjörðurinn mjór og einstaklega veðursæll. Fjörðurinn státar af einstakri náttúrufegurð og hann er vel falinn fjársjóður inn á milli fjallanna. Í Brekkuþorpi er allt að finna sem þurfa þykir í mannlegu samfélagi. Þar er kirkja, skóli, ferðamannaverslun, póstafgreiðsla, kaffistofa og þaðan er rekin útgerð og fiskeldi.
Að Asknesi er hægt að sjá leifar af gamalli hvalstöð, sem reist var af Norðmönnum um aldamótin 1900 og var hún sú stærsta í heiminum á þeim tíma. Þegar umsvif stöðvarinnar voru í hámarki unnu þar um 200 manns en í dag búa aðeins um 40 manns í Mjóafirði öllum.
Samgöngur við Mjóafjörð geta verið erfiðar yfir vetrarmánuðina en Flóabáturinn Anný (s, 476 0005 og 853 3004) gengur aðeins yfir vetrarmánuðina frá 1.okt - 31.maí, á milli Brekkuþorps og Neskaupstaðar, tvisvar í viku. Góður vegur liggur um Slenjudal og yfir Mjóafjarðarheiði, en vetraropnun er þar ekki regluleg. Vegur er svo út með firðinum að norðanverðu, allt út að Dalatanga en hann er opinn á meðan snjólag leyfir.
Mikið berjaland er í Mjóafirði en frægastur er hann líklega fyrir mikla kyrrð og fallega fossa.
Heimild: Sjá hérMynd: Sveinn Ingi
Mjóifjörður er mjór og afskekktur fjörður á Austurlandi. Við fjörðinn er lítið byggðarlag, Brekkuþorp.
Vegurinn yfir Mjóafjarðarheiði er yfirleitt aðeins opinn yfir sumartímann. Á veturna er fjörðurinn aðgengilegur sjóleiðis.
Mjóifjörður
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Mjóifjörður er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.