Skógafoss

Ósk
Séð

Suðurland

Sjá á korti

2368 skoðað

Skógafoss er af mörgum talinn einn af fegurstu fossum landsins og þótt víðar væri leitað. Hann fellur af fornum sjávarhömrum vestan Skóga, úr Skógá sem á upptök sín annars vegar undan Eyjafjallajökli fyrir neðan Fimmvörðuháls og hins vegar vestasta hluta Mýrdalsjökuls. Báðar þessar kvíslar eru bergvatnsár en í miklum leysingum taka þær á sig mynd móbrúnna jökulvatna. Milli þessara kvísla heitir Landnorðurstungur, fremur hrjóstrugar beitilendur. Við Kambfjöll sameinast þessar kvíslar og úr verður ein á Skógá. Í ána renna einnig lindir og litlir lækir. Áin rennur svo eftir Skógárgili meðfram Hornfelli og síðan út úr gilinu skammt fyrir neðan Hornfell og endar svo á að steypast fram af heiðarbrúninni vestan Fosstorfu í þeim fræga fossi Skógafossi. Þess má geta að telja má á þriðja tug fossa í Skógárgili, marga ægifagra og heillandi, suma litla og margbrotna, aðra háa og tignarlega. 

Þar sem Skógá kemur fram á heiðarbrúnina rennur áin á hörðu berglagi og dreifist vatnið mjög jafnt um farveginn sem skapar einstaklega formfagran foss þar sem það fellur niður á jafnsléttu 62 metra. Fossinn er um 15 metra breiður en vestan megin við miðju fossins myndast smá rauf í fossinn sem brýtur hann svolítið upp. Þegar mikið er í ánni þá hverfur þessi rauf og fossinn verður samfelldur. 

Skógafoss á fáa sína líka, ekki síst fyrir það hvað auðvelt er að nálgast hann og virða hann fyrir sér þar sem maður stendur fyrir framan hann og það er magnþrungið að standa rétt við hylinn og horfa upp eftir fossinum og finna fyrir hversu lítill maður er í samanburði við náttúruöflin. Umhverfi fossins er einnig fallegt, móbergshamrar til beggja hliða þar sem fýllinn hefur tekið sér bólfestu í úðanum frá fossinum og svo grónar og grösugar brekkur. 

Mjög gjarnan þegar sólar nýtur við má sjá regnboga við fossinn og segir sagan að þá glampi á gull Þrasa landnámsmanns í Skógum en sagan segir einnig að Þrasi hafi komið gullkistu sinni fyrir undir fossinum. En um það má lesa betur í þeirri sögu sem segir frá þeim atburðum. En hvort sem kistan er þar eða ekki þá gefur regnboginn fossinum enn meiri tign. 

Ekki er fossinn síðri á veturna þegar áin er yfirleitt vatnsminni. Þá verður hann slitróttari og fleiri skörð kom í hann sem gefur honum nýja mynd og ekki skemmir fyrir ef umhverfið klæðist vetrarbúningi við það tilefni.

Skógá rennur svo áfram frá fossinum niður með Drangshlíðarfjalli og Skóganúp, og meðfram sandöldu Skógasands niður til sjávar.

Skógafoss er staðsettur vestan við Skóga, beygt til vinstri á fyrsta afleggjara þegar ekið er upp að Skógum.  Aðgengi að fossinum er gott auðvelt að ganga að honum, ágætt tjaldsvæði er við fossinn, með salerni og sturtuaðstöðu.

Heimild: www.eyjafjoll.is

Skógafoss
Föstudagur
17:00
1.7°c
7.8 E
Föstudagur
18:00
1.8°c
9.4 E
Föstudagur
19:00
2.1°c
8.9 E
Föstudagur
20:00
2.4°c
9.4 E
Föstudagur
21:00
2.8°c
10.8 E
Föstudagur
22:00
3.1°c
11.3 E
Föstudagur
23:00
3.9°c
10.0 E
Laugardagur
0:00
4.3°c
8.1 E
Laugardagur
1:00
4.4°c
6.9 E
Laugardagur
2:00
4.6°c
6.7 E
Laugardagur
3:00
4.8°c
6.9 E
Laugardagur
4:00
5°c
7.2 E
Laugardagur
5:00
5.2°c
7.1 E
Laugardagur
6:00
5.2°c
6.2 E
Laugardagur
7:00
5.1°c
6.1 E
Laugardagur
8:00
5.3°c
5.5 E
Laugardagur
9:00
5.6°c
4.2 E
Laugardagur
10:00
5.7°c
6.5 SE
Laugardagur
11:00
6.2°c
6.8 S
Laugardagur
12:00
6.5°c
6.8 S
Laugardagur
13:00
6.6°c
6.2 S
Laugardagur
14:00
6.7°c
5.8 S
Laugardagur
15:00
6.7°c
6.3 SE
Laugardagur
16:00
6.6°c
6.7 SE
Laugardagur
17:00
6.4°c
6.7 SE
Laugardagur
18:00
6.5°c
6.9 SE
Laugardagur
19:00
6.5°c
7.5 SE
Laugardagur
20:00
6.4°c
8.0 SE
Laugardagur
21:00
6.5°c
9.2 SE
Laugardagur
22:00
6.6°c
10.4 SE
Laugardagur
23:00
6.6°c
11.4 S
Sunnudagur
0:00
6.8°c
12.1 S
Sunnudagur
1:00
7°c
12.2 S
Sunnudagur
2:00
7°c
11.8 SW
Sunnudagur
3:00
5.9°c
10.6 W
Sunnudagur
4:00
4.9°c
9.3 NW
Sunnudagur
5:00
3.8°c
10.7 NW
Sunnudagur
6:00
3.1°c
10.2 NW
Sunnudagur
7:00
3.4°c
10.3 W
Sunnudagur
8:00
3.7°c
10.8 W
Sunnudagur
9:00
3.8°c
10.9 W
Sunnudagur
10:00
4.2°c
10.3 W
Sunnudagur
11:00
4.9°c
10.0 W
Sunnudagur
12:00
5.2°c
10.6 W
Sunnudagur
13:00
5°c
10.5 W
Sunnudagur
14:00
5.3°c
10.7 W
Sunnudagur
15:00
5.6°c
10.5 W
Sunnudagur
16:00
5.7°c
10.4 W
Sunnudagur
17:00
5.6°c
10.2 W
Sunnudagur
18:00
5.3°c
9.9 W
Sunnudagur
19:00
4.8°c
9.3 W
Sunnudagur
20:00
4.4°c
8.7 NW
Sunnudagur
21:00
3.7°c
8.2 NW
Sunnudagur
22:00
3.2°c
7.8 NW
Sunnudagur
23:00
2.6°c
7.2 NW
Mánudagur
0:00
2°c
7.2 NW
Mánudagur
1:00
1.6°c
7.4 NW
Mánudagur
2:00
1.8°c
8.3 NW
Mánudagur
3:00
2.1°c
9.0 NW
Mánudagur
4:00
2.3°c
9.6 NW
Mánudagur
5:00
2°c
8.7 NW
Mánudagur
6:00
1.8°c
7.8 NW
Mánudagur
12:00
8.9°c
1.9 SW
Mánudagur
18:00
8.4°c
3.6 W
Þriðjudagur
0:00
6.4°c
1.8 NW
Þriðjudagur
6:00
7.7°c
1.0 NW
Þriðjudagur
12:00
6.8°c
1.1 S
Þriðjudagur
18:00
7.6°c
1.1 SW
Miðvikudagur
0:00
5.2°c
1.3 E
Miðvikudagur
6:00
3°c
0.5 NE
Miðvikudagur
12:00
5.7°c
6.5 E
Miðvikudagur
18:00
4.7°c
6.1 E
Fimmtudagur
0:00
2.6°c
5.6 E
Fimmtudagur
6:00
0°c
4.1 E
Fimmtudagur
12:00
3.9°c
4.1 SE
Fimmtudagur
18:00
3.3°c
2.9 SE
Föstudagur
0:00
-1.2°c
0.7 N
Föstudagur
6:00
-2.8°c
2.4 NE
Föstudagur
12:00
2.6°c
1.1 W
Föstudagur
18:00
2.7°c
1.3 S
Laugardagur
0:00
-0.6°c
1.1 NE
Laugardagur
6:00
-0.2°c
1.2 NE
Laugardagur
12:00
4.5°c
1.3 SW
Laugardagur
18:00
4.3°c
1.8 SE
Sunnudagur
0:00
2.5°c
1.3 SE
Sunnudagur
6:00
1.6°c
2.6 NE
Sunnudagur
12:00
4.6°c
1.5 SW
Sunnudagur
18:00
4.5°c
1.8 SW


Staðir nálægt mér

© Anton Stefánsson | antonstefans@gmail.com

Vefsíðan notast við kökur