Uppgötvaðu Ísland
Steinahellir er í brekkurótum fyrir ofan Holtsós í Eyjafjöllum. Fyrir framan hellinn er lítið vatn sem nefnist Hellisvatn og segja sögur að nykur haldi þar til. Eyfellingar gerðu eitt sinn tilraun til að reka sýslumann sinn ofan í vatnið í hinu svokallaða fjárklæðamáli, sem sagt verður nánar frá síðar.
Margar sögur fara einnig af huldufólki í og við hellinn. Steinahellir er opinn mót suðri og umhverfi hans eru grónar brekkur sem teygja sig upp að hamrabelti í Steinafjalli. Nokkuð grjóthrun varð úr fjallinu nærri hellinum 1. september 1979, aftur árið 1984 og svo stór skriða 11. mars 1986. Stór björg sjást enn í brekkunni ofan við hellinn.
Mjög auðvelt er að komast að Steinahelli. Beygt er af þjóðveginum inn á afleggjara sem liggur beint fyrir framan hellismunnann.
Steinahellir er rúmgóður. Hellismunninn er um sex metra breiður og allt að fjórum metrum á hæð. Innar í hellinum breikkar hann og hækkar og er um 15 metra djúpur.
Hellirinn var þingstaður Eyfellinga á árunum 1818 til 1905 og var þá með timburþili. Fyrir framan hann voru smíðuð og geymd skip Eyfellinga. Steinahellir var einnig notaður sem fjárhús, bæði fyrr á tímum og á síðustu öld, auk þess sem hey var geymt þar. Síðar þjónaði hann sem vélageymsla.
Undir lok síðustu aldar var hellirinn hreinsaður og er hann nú aðgengilegur ferðamönnum.
Texti og mynd: www.eyjafjoll.is
Staðurinn getur verið hluti af stærri ferð um Suðurland, þar sem auðvelt er að tengja heimsóknina við fleiri áfangastaði á svæðinu.
Náttúrulegur hellir í móbergi sem hefur verið dýpkaður og breikkaður af mönnum í gegnum tíðina.
Hellirinn var öldum saman notaður fyrir sauðfé og varð þingstaður Eyfellinga árið 1818.
Steinahellir
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Hann er vinsæll meðal ævintýrafólks.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.