Vestmannaeyjar
Þéttbýlisstaðir

Uppgötvaðu Ísland

Vestmannaeyjar

Ósk
Hef séð
Íbúafjöldi · 20264.518 íbúar
Tegund byggðarBær
Póstnúmer900
Hæð10 m yfir sjávarmáli
Ráðlagður tími6 klst.

Vestmannaeyjar eru eyjaklasi suður af Íslandi, samtals 15 eyjar og um 30 sker og drangar. Syðsta eyjan er Surtsey og sú nyrsta er Elliðaey. Heimaey er stærst eyjanna og sú eina sem er byggð, en þar er Vestmannaeyjabær með um 4.100 íbúa.


Fyrstu heimildir um Vestmannaeyjar eru í Landnámu (Sturlubók), þar sem segir frá Ingólfi Arnarsyni, fyrsta landnámsmanninum. Þegar hann kom til landsins dvaldist hann einn vetur á Ingólfshöfða, og hélt svo vestur með landinu í leit að öndvegissúlunum sínum. Þá fann hann bæ Hjörleifs, fóstbróður síns, og var hann þar látinn; hafði hann þá verið myrtur af þrælum sínum. Úti af Hjörleifshöfða sá hann eyjaklasa suður af Landeyjum og datt honum til hugar að þrælarnir hafi farið þangað. Eyjarnar voru þá nefndar eftir þrælunum, en þeir voru af írsku bergi brotnir og Írar og Skotar voru gjarnan kallaðir Vestmenn á þessum tíma. Ingólfur elti þrælana uppi og drap þá, og eru mörg örnefni á eyjunum gefin eftir þrælunum. Meðal þeirra er Helgafell, nefnt eftir Helga sem var veginn þar, og Dufþekja í Heimakletti, en hún er nefnd eftir Dufþaki sem sagður er hafa hoppað þar niður til að komast hjá því að falla fyrir sverði Ingólfs.

Staðurinn getur verið hluti af stærri ferð um Suðurland, þar sem auðvelt er að tengja heimsóknina við fleiri áfangastaði á svæðinu.

Þekkt fyrir

Heimaey, Eldfell, lundabyggðir, gosið 1973 og stórbrotið eyjalandslag

Saga

Verslunar-/kaupstaðarréttindi1918

Þjónusta í byggðinni

Matvöruverslun
Veitingastaðir
Kaffihús
Gisting
Tjaldsvæði
Sundlaug
Apótek
Heilbrigðisþjónusta
Rafhleðsla
Höfn
Flugvöllur
Upplýsingamiðstöð
Heimild Síðast yfirfarið: 9. september 2026

Einkunnir og umsagnir

Vestmannaeyjar

Eyjarnar eru vinsæll ferðamannastaður.

Algengar spurningar