Uppgötvaðu Ísland
Tjaldsvæði
Fjölskylduvænt svæði með ótal afþreyingarmöguleikum í nágrenninu. Svæðið er sunnan til í Reykjarhóli sem er skógi vaxið og því mjög skjólgott. Tjaldsvæðið er í misstórum básum sem eru afmarkaðir með trjábeltum. Af Reykjarhóli er stórkostlegt útsýni yfir Skagafjörð og sólarlagið er ólýsanlegt. Sér stæði f. húsbíla/hjólhýsi fyrir þá sem vilja. Tjöld sér (ekki innan um bíla og hjólhýsi).
Aðstaðan: Friðsæll og notalegur staður með snyrtilegum salernum, heitu og köldu vatni og rafmagni. Þvottavél, þurrkari og sturta er einnig á staðnum. Stutt er í alls kyns afþreyingu. Tveir fótboltavellir eru við tjaldsvæðið og aðeins 250 m. ganga eftir fallegum skógarstíg að sundlaug sem er 25 x 12.5 m., ásamt heitum potti. Að auki er sér barnalaug sem er heitari, með lítilli rennibraut fyrir allra minnstu gestina.
Annað: Upplýsingamiðstöð er á staðum þar sem allar upplýsingar varðandi afþreyingu, gönguleiðir, þjónustu, söfn, kirkjur og fl.
ATH. Tjaldsvæðin á Sauðárkróki, Hofsós, Hólum og Varmahlíð eru í samstarfi þannig að hægt er að gista fyrstu nóttina á einhverju af þessum fjórum tjaldsvæðum og fá þá lægra verð næstu nótt á eftir á einhverju af hinum tjaldsvæðunum. Nauðsynlegt er að framvísu greiðslukvittun af fyrra tjaldsvæði.
Verðskrá:
Heimild: Sjá hérMynd: tjoldumiskagafirdi.is
Skjólgott tjaldsvæði í skóglendi við Varmahlíð. Í þjónustuhúsi eru salerni, heitt og kalt vatn, sturta, þvottavél og þurrkari. Rafmagn er í boði og stór trampólína er fyrir börn.
Tjaldstæði Varmahlíðar
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Hentar vel fyrir fjölskyldur.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.