Sauðárkrókur
Þéttbýlisstaðir

Uppgötvaðu Ísland

Sauðárkrókur

Ósk
Hef séð
Íbúafjöldi · 20262.672 íbúar
Tegund byggðarBær
Póstnúmer550
Hæð10 m yfir sjávarmáli
Ráðlagður tími2–3 klst.

Sauðárkrókur (oft kallaður Krókurinn í daglegu tali) er bær í Sveitarfélaginu Skagafirði og eini kaupstaður Skagafjarðarsýslu.
Sauðárkrókur er innst við botn Skagafjarðar að vestanverðu, sunnan undir Tindastóli og skammt sunnan við ós Gönguskarðsár. Byggðin var fyrst öll á fremur mjórri malarspildu undir Nöfunum, bröttum malarkömbum upp af bænum, norðan við ós Sauðár, sem þá rann fram úr Sauðárgili og til norðurs um eyrar undir Nöfunum, þar sem nú er íþróttavöllur, sundlaug og tjaldstæði bæjarins. Byggðin færðist síðar suður fyrir ána og rann hún þá gegnum bæinn en síðar var ánni veitt til suðurs þar sem hún kemur úr Sauðárgili og rennur hún nú fyrir sunnan byggðina.

Gönguskarðsá hefur einnig myndað allnokkra eyri við ósinn og þar er höfnin, frystihús, sláturhús og steinullarverksmiðja. Fimm klaufir eða skorningar ganga inn í Nafirnar upp af bænum og nefnast þær Kristjánsklauf, Gránuklauf eða Bakarísklauf, Kirkjuklauf, Grænaklauf og Grjótklauf. Framan af var byggðin öll á eyrinni og flötunum neðan Nafanna en þegar það svæði var nær fullbyggt um 1970 hófst uppbygging nýs hverfis á Sauðárhæðum, sunnan Sauðárgils, og hefur það verið aðalbyggingasvæði bæjarins síðan.

Á Króknum búa nú um 2600 manns sem hafa atvinnu af sjávarútvegi, fjölbreyttum iðnaði og verslun og þjónustu í síauknum mæli, en á Sauðárkróki hefur til dæmis Byggðastofnun höfuðstöðvar sínar. Kaupfélag Skagfirðinga er langstærsta fyrirtækið sem starfar á Sauðárkróki og rekur það mjög fjölbreytta starfsemi, svo sem verslanir, mjólkurbú, sláturhús og kjötvinnslu, vélaverkstæði og margt annað.

Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra var stofnaður á Sauðárkróki árið 1979. Þar er líka heilsugæsla og allstórt sjúkrahús.

Heimild: Sjá hér

 

Þekkt fyrir

Miðstöð Skagafjarðar, hestasögu, söfn og þjónustu

Saga

Verslunar-/kaupstaðarréttindi1947

Þjónusta í byggðinni

Matvöruverslun
Eldsneyti
Veitingastaðir
Kaffihús
Gisting
Tjaldsvæði
Sundlaug
Apótek
Heilbrigðisþjónusta
Rafhleðsla
Almenningssamgöngur
Heimild Síðast yfirfarið: 9. september 2026

Einkunnir og umsagnir

Sauðárkrókur

Bærinn er þjónustumiðstöð svæðisins.

Algengar spurningar