Sauðárkrókskirkja
Kirkjur

Uppgötvaðu Ísland

Sauðárkrókskirkja

Ósk
Hef séð

Kirkjur Íslands

LandsvæðiNorðurland
Byggingarár1892
Arkitekt / hönnuðurÞorsteinn Sigurðsson
ByggingarefniTimber
Stærð16,42 × 8,85 m
TurnJá
FriðunFriðuð frá 1990

Sauðárkrókskirkja er kirkja á Sauðárkróki sem var vígð 9. desember 1892. Kirkjusóknin var sameinuð Sjávarborgar- og Fagranessóknum, og nær sóknin yfir Reykjaströnd, Gönguskörð, Sauðárkrók og Borgarsveit.

Kirkjan var stækkuð árin 1957 og 1958 og turninn endurbyggður og steyptur kjallari. Fyrir hundrað ára afmæli kirkjunnar var hún svo endurbyggð að miklu leyti og lengd um tæpa fjóra metra til vesturs.

Altaristafla kirkjunnar er frá 1895. Hún er eftir danska málarann Anker Lund. Ljósakrónur í kirkjuskipinu eru olíulampar sem gerðir voru að rafljósum 1923. Steindir gluggar eru í kirkjunni.

Kirkjugarðurinn er á Nöfunum fyrir ofan bæinn. Elsti hluti garðsins er frá 1893.

Heimild: Sjá hér

Sjá heimild Fleiri kirkjur á Norðurlandi

Einkunnir og umsagnir

Sauðárkrókskirkja

Hluti af bæjarmyndinni.

Algengar spurningar