Þórðarhellir
Hellar

Uppgötvaðu Ísland

Þórðarhellir

Ósk
Hef séð
TegundKletthellir
ErfiðleikastigKrefjandi

Hellirinn er 10,5 metrar á breidd og 12 metrar á lengd. Mesta hæð hans er 3,10 metrar, hann er hæstur til suðausturs en lækkar mjög til jaðranna. Mynni Þórðarhellis er mjög lágt og frekar mjótt og verður að skríða grjótskriðu niður á við til að komast inn í hellinn. Leifar af hleðslu, hægra megin þegar komið er inn í hellinn munu enn hafa verið sýnilegar í lok 19. aldar og byrjun þeirrar 20. Nú sjást engin óræk merki um mannvist í hellinum.

Sagnir herma að Þórðarhellir sé gamalt útilegubæli. Tvennum sögum fer af Þórði þeim sem hellirinn er kenndur við. Telja sumir að hann sé kenndur við Þórð galdramann Guðbrandsson, bónda á Munaðarnesi, sem brenndur var fyrir galdra 1654. Þjóðsaga segir að hann hafi sloppið úr brennunni og leitað til bóndans í Litlu-Ávík sem hafi leynt honum í hellinum.

Önnur munnmæli og öllu trúlegri herma að hellirinn dragi nafn af Þórði sakamanni sem leyndist í hellinum um hríð. Ástir tókust með honum og heimasætunni á Litlu-Ávík og flutti hún í hellinn til hans og ól honum barn. Bóndinn í Litlu-Ávík brást ókvæða við þegar hann frétti hvar dóttir hans hélt til og fór með lið manna í hellinn og nam stúlkuna og barnið á brott. Veittust mennirnir að Þórði en hann varðist þeim ofan af klettasyllu í Hyrnunni og kastaði í þá grjóti. Sagt var að bóndinn hefði látist af áverkum sem hann hlaut af völdum Þórðar.

Heimild: Sjá hér

Opið almenningi

Jarðfræði

Hellir undir háu klettabelti í Reykjaneshyrnu.

Aðgengi

Aðkoman er brött og laus í sér og hellirinn er um rúmlega klukkustundar göngu frá Litlu-Ávík.

Upplýsingar fyrir gesti

Þjóðsögur segja að hellirinn hafi verið notaður sem skjól af útlögum.

Síðast staðfest 16 september 2026 Heimild

Einkunnir og umsagnir

Þórðarhellir

Hellirinn er hluti af íslensku hraunlandslagi.

Algengar spurningar