Raufarhólshellir
Hellar

Uppgötvaðu Ísland

Raufarhólshellir

Ósk
Hef séð
TegundHraunhellir
Lengd1360 m
ErfiðleikastigAuðveld til miðlungs
Ráðlagður heimsóknartími1 klst.

Raufarhólshellir er rétt fyrir ofan efsta hjallann á Þrengslavegi, áður en farið er niður í áttina til Þorlákshafnar. Hann er ekki vel sýnilegur frá veginum þótt hann sé aðeins steinsnar frá honum austanverðum.

Raufarhólshellir er u.þ.b. 1360 m langur og liggur að hluta undir Þrengslaveginum til norðvesturs. Hann er 10-30 m breiður og upp undir 10 m hár. Nokkur smá op eru fremst í hellinum og er farið ofan í það syðsta. Raufarhólshellir er fjórði lengsti hraunhellir landsins og sá lengsti utan Hallmundarhrauns í Borgarfirði.
Hellirinn er í Leitahrauni sem rann fyrir um 5200 árum en upptökustaður eldsumbrotanna voru rétt austan Bláfjalla í Leitum.

Aðgengi í hellinn er um op rétt austan við veginn og er þar hægt að leggja bifreiðum. Afleggjari að hellinum er merktur og við opið er auk þess upplýsingaskilti.

Heimild: Sjá hér

Hraunhellir
Leiðsögn nauðsynleg
Hjálmur
Höfuðljós
Lýsing
Göngupallur
Opið almenningi
Opið allt árið
Aðgangseyrir

Jarðfræði

Einn lengsti og þekktasti hraunhellir landsins, myndaður í Leitahrauni fyrir um 5.200 árum.

Upplýsingar fyrir gesti

Göngupallar og lýsing eru í hluta hellisins. Lengri ævintýraferðir fara dýpra inn í náttúrulegan hluta hellisins.

Síðast staðfest 16 september 2026 Heimild

Einkunnir og umsagnir

Raufarhólshellir

Hellirinn er þekktur fyrir víðáttumiklar hraunmyndanir og litadýrð.

Algengar spurningar