Uppgötvaðu Ísland
Námafjall og umhverfi er háhitasvæði sem liggur um sprungurein sem nær norður úr Öxarfirði gegnum eldstöðina Kröflu og suður fyrir Hverfell. Jarðhitanum er viðhaldið af kvikuinnskotum frá eldstöðinni.
Þjóðvegurinn milli Mývatns og Austurlands liggur um Námaskarð rétt austan Bjarnarflags milli Dalfjalls og Námafjalls.
Þétt sprungubelti liggur yfir allt Námafjallssvæðið en meginuppstreymið er austan við fjallið og hefur það gengið síðustu ár undir nafninu Hverarönd. Á því svæði eru margir gufu- og leirhverir, en engir vatnshverir. Leirhverirnir eru stórir og áberandi en gufuhverirnir eru margir ekki annað en borholur sem búið er að hlaða grjóti yfir. Jarðvegur ófrjór og gróðurlaus á háhitasvæðinu og mjög súr vegna áhrifa hveraloftsins og fellur út brennisteinn. Fyrr á öldum var mikið brennisteinsnám við Námafjall en á miðöldum var brennisteinninn notaður í púður. Eigendur Reykjahlíðar auðguðust mikið á sölu brennisteins. Brennisteinn var unninn í Hlíðarnámum. Danakonungur eignaðist námurnar árið 1563. Þær voru nýttar af og til fram á miðja 19. öld. Verksmiðja til að vinna brennistein var reist í Bjarnarflagi árið 1939 og starfaði í nokkur ár.
Jarðhitasvæðið við Námafjall og allur Skútustaðahreppur var friðlýst árið 1974.
Heimild: Sjá hérMynd: Anton Stefánsson
Námaskarð er öflugt háhitasvæði með leirhverum, gufustrókum, brennisteinsútfellingum og litríkum jarðvegi.
Haldið ykkur á merktum stígum. Jarðvegurinn getur verið mjög heitur og þunnur á köflum.
Námaskarð
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Námaskarð er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.