Jarðböðin við Mývatn
Jarðböð & heilsulaugar

Uppgötvaðu Ísland

Jarðböðin við Mývatn

Ósk
Hef farið
LandshlutiNorðurland
Heimsóknir11,166 skoðað
VefsíðaOpna vefsíðuLeiðarlýsingOpna í korti
Jarðböðin við Mývatn voru opnuð 30. júní 2004 og bjóða upp á baðlón með jarðhitavatni. Auk þess eru þar náttúruleg gufuböð, heitur pottur og kaffihúsið Kaffi Kvika. Nýjasta viðbótin er bar úti í lóni og geta gestir nú synt upp á barnum og pantað drykki.
Hitastig baðlónins er 36°-39° og vatnið er steinefnaríkt og basískt sem gerir það frábært til böðunar. Efnasamsetning vatnsins gerir það að verkum að bakteríur þrífast ekki og því þarf ekki að nota klór eða önnur hreinsiefni. Vatnið er einnig einstaklega gott fyrir húðina, en hún verður silkimjúk eftir afslappaða dvöl í Jarðböðunum. Eftir baðferð er upplagt að setjast niður í kaffihúsinu. Kaffi Kvika býður upp á létta rétti og þar ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Jarðböðin við Mývatn eru opin daglega, allt árið um kring að undanskildum 1. janúar.

Njóttu jarðhitavatns og einstakrar náttúru Mývatnssveitar í Jarðböðunum við Mývatn.

Einkunnir og umsagnir

Jarðböðin við Mývatn

Jarðböðin við Mývatn eru einn þekktasti baðstaður Norðurlands. Þar geta gestir slakað á í steinefnaríku jarðhitavatni með útsýni yfir einstakt landslag Mývatnssveitar.

Auk baðlónsins er þar að finna heitan pott og náttúruleg gufuböð sem nýta jarðhitann á svæðinu.

Algengar spurningar