Uppgötvaðu Ísland
Tjaldsvæði
Hlíð ferðaþjónusta er staðsett við norðanvert Mývatn, nálægt flugvellinum. Svæðið er um 1 km frá bökkum Mývatns og þar af leiðandi er hin alræmda mýfluga ekki mikið að angra okkur. Við erum með hlýlegt hraunið allt um kring og frábært útsýni yfir vatnið. Trjágróður er lítill en það þýðir líka að að minna er um flugu.
Tjaldsvæði: Við bjóðum upp á tjaldsvæði með fyrsta flokks aðstöðu. Vaskar með heitu og köldu vatni eru á nokkrum stöðum á tjaldsvæðinu, 2 snyrtingahús og 1 sturtuhús. Rafmagnstenglar eru í boði víðs vegar um svæðið en borga þarf sérstaklega fyrir notkun á rafmagni. Trjágróður er lítill en tjaldsvæðið er hlýlegt, rómantískar lautir í hrauninu, rúmgóðir grasbalar fyrir glaðværa hópa, og allt þar á milli. Svæðið er í um 1 km fjarlægð frá bökkum Mývatns sem gerir að verkum, ásamt því að það er ekki skógi vaxið, að lítið er um mýflugur. Við erum með litla verslun í afgreiðsluhúsi þar sem hægt er að kaupa sælgæti, gos og mjólkurvörur og einnig póstkort. Stórt eldhústjald er á svæðinu.
Heimild: Sjá hérMynd; Hlíð Ferðaþjónusta
Vel búið tjaldsvæði við Mývatn. Á svæðinu eru tvö snyrtingahús, sturtuhús, heitt og kalt vatn, stórt eldhústjald og rafmagnstengingar. Lítil verslun og leiksvæði eru einnig á staðnum.
Hlíð Ferðaþjónusta
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Hlíð Ferðaþjónusta er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.