Jökulsárlón
Vötn

Uppgötvaðu Ísland

Jökulsárlón

Ósk
Hef séð
TegundGlacial lagoon
Mesta dýpi260 m

Jökulsárlón er lón við rætur Breiðamerkurjökuls. Jökulsá á Breiðamerkursandi rennur úr því. Samkvæmt nýlegum mælingum er Jökulsárlón dýpsta vatn á Íslandi. Þar með er vatnið orðið dýpra en Öskjuvatn, sem áður var dýpsta vatn Íslands. Öskjuvatn er 220 metrar á dýpt en að sögn Einars B. Einarssonar, sem rekur bátaþjónustu fyrir ferðamenn á svæðinu, mældist dýpið í Jökulsárlóni 248 metrar niður á botn.

Jökulsárlón er ungt lón og hefur myndast eftir að Breiðamerkurjökull tók að hopa eftir 1933. Áður rann áin beint undan jökli og til sjávar. Breiðamerkursandur var fyrr á öldum töluvert breiðari en hann er nú; bæði hefur sjór brotið af honum og einnig náði jökullinn skemmra fram á sandinn. Þegar Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson fóru um sandinn 1756 töldu þeir um eina danska mílu (7,5 km) milli jökuls og sjávar. Á næstu áratugum skreið jökullinn mjög fram og þegar Sveinn Pálsson fór um sandinn 1794 taldi hann aðeins um 2 km milli jökuls og sjávar. Þegar jökullinn skreið fram hefur hann líklega grafið sig djúpt ofan í gljúp jarðlög og þegar hann fór að hopa aftur á 4. áratug 20. aldar myndaðist lón þar sem hann hafði grafið sig niður.

Staðurinn getur verið hluti af stærri ferð um Austurland, þar sem auðvelt er að tengja heimsóknina við fleiri áfangastaði á svæðinu.

Jökulvatn
Bílastæði
Friðlýst
Síðast staðfest 16 september 2026 Heimild

Einkunnir og umsagnir

Jökulsárlón

Lónið er vinsæll áfangastaður ferðamanna.