Hraunfossar
Fossar

Uppgötvaðu Ísland

Hraunfossar

Ósk
Hef séð

Fossar Íslands

Tegund fossLava waterfalls
LandsvæðiVesturland

Hraunfossar – (einnig nefndir Girðingar) – er samheiti á ótal tærum, fossandi lindum sem koma undan Hallmundarhrauni, sem á þessum stað er nefnt Gráhraun, og renna íHvítá í Borgarfirði. Skammt frá Hraunfossum er bærinn Gilsbakki í Hvítársíðu, ferðamannastaðurinn Húsafell er þar í grennd og ekki er langt til Reykholts.

Úrkoma sem fellur á hraunið og jarðvatn sem síast frá umhverfinu, rennur á milli hraunlaga og kemur fram við hraunjaðarinn og myndar Hraunfossa. Vatnið kemur fram undan hraunjaðrinum á um 1 km löngum kafla. Falla þar fram í Hvítá ótal bunur og fossar, um kletta og skógarkjarr, allan ársins hring. Rennslið frá lindunum er um 5 m³/s (rúmmetrar á sekúndu) og vatnshitinn um 3,5°C.

Barnafoss er gljúfri í Hvítár ofan við Hraunfossa. Staðurinn er þekktur fyrir steinboga (brýr) sem áin hefur markað í bergið með ógnarkrafti sínum. Meðalrennsli árinnar er að jafnaði 80 m³/s en hefur í flóðum mælst allt að 500 m³/s. Þá flæðir áin upp úr þrengingunum og yfir nærliggjandi svæði eins og umhverfið ber með sér. Svæðið var friðlýst árið 1987.

Heimild: Sjá hér

Aðgengi

Aðgengi af vegiJá
BílastæðiJá
SalerniJá
ErfiðleikastigEasy

Útsýni og upplifun

Útsýnispallur

Jarðfræði

Hraunfossar myndast þegar kalt og tært grunn- og lindarvatn kemur undan og í gegnum hraunið og fellur í fjölmörgum smáfossum og flúðum niður í Hvítá.

Síðast staðfest 8. september 2026 Sjá heimild

Einkunnir og umsagnir

Hraunfossar

Fossarnir eru vinsæl náttúruperla.

Algengar spurningar