Surtshellir
Hellar

Uppgötvaðu Ísland

Surtshellir

Ósk
Hef séð
TegundHraunhellir
Lengd1970 m
Fjöldi opa5
ErfiðleikastigKrefjandi

Surtshellir er lengsti og þekktasti hraunhellir á Íslandi, um 1.970 metrar á lengd. Surtshellir er í Hallmundarhrauni, á um 40 m dýpi í um 14 km frá Húsafelli og 60 km frá Borgarnesi. Hæð til lofts í aðalhelli er 8-10 m og 2-4 m í vesturenda hans. Innsti hluti hellisins hefur verið kallaður Íshellir því í honum myndast ísstrýtur. Íshellir er í senn greiðfærasti og fegursti hluti hellisins, en hellisgólf hallar nokkuð. Þá er seinfarið er um hellinn því í botni hans er víða stórgrýtt urð, sem fallið hefur úr þakinu. Á hellisþaki eru fimm op sem komast má um inn í hellinn. Opin hafa ýmist myndast við hrun eða sem útrásir fyrir hraunleðju. Þrír afhellar eru út frá fremsta hluta Surtshellis, Beinahellir, Hringhellir og Vígishellir hvar innan eru mannvirki, grjóthleðsla og fleiri hleðslur. Skammt frá Surtshelli er hellirinn Víðgelmir. Þak Surtshellir og Víðgelmir eru vinsælir áfangastaðir ferðamanna.

Hraunhellir
Hjálmur
Höfuðljós
Sérbúnaður

Jarðfræði

Langur hraunhellir í Hallmundarhrauni með ísmyndunum og sögulegum mannvistarleifum.

Öryggi

Ójafnt og grýtt undirlag. Ís getur verið í hellinum og þar getur verið mjög hált.

Síðast staðfest 16 september 2026 Heimild

Einkunnir og umsagnir

Surtshellir

Hellirinn er hluti af miklu hraunakerfi og áhugaverður fyrir náttúruunnendur.

Algengar spurningar