Búðardalur

Ósk
Séð
Búðardalur er þorp í Dölum, við botn Hvammsfjarðar. Þorpið er nú hluti af sveitarfélaginu Dalabyggð og er stjórnsýslumiðstöð þess. Íbúar Búðardals voru 248 þann 1. janúar 2011.
Í Laxdælasögu er Búðardalur nefndur og sagt frá því að Höskuldur Dala-Kollsson lenti skipi sínu fyrir innan Laxárós þegar hann kom úr Noregsferð og hafði ambáttina Melkorku með sér: „Höskuldur lenti í Laxárósi, lætur þar bera farm af skipi sínu en setja upp skipið fyrir innan Laxá og gerir þar hróf að og sér þar tóftina sem hann lét gera hrófið. Þar tjaldaði hann búðir og er það kallaður Búðardalur. Síðan lét Höskuldur flytja heim viðinn og var það hægt því að eigi var löng leið.“

Búðardalur liggur í Dalasýslu.

Vesturland

248 Manns

942 skoðað

Búðardalur

Þorpið er þekkt fyrir sögu og náttúru.

Algengar spurningar

Hvar er Búðardalur?
Búðardalur er á Vesturlandi, við Hvammsfjörð.
Hvað einkennir Búðardal?
Bærinn er þjónustumiðstöð Dalabyggðar.
Er Búðardalur við Hringveginn?
Nei, bærinn er aðeins út af hringveginum.
Er Búðardalur vinsæll viðkomustaður?
Já, sérstaklega fyrir ferðir um Vesturland.
Eru söfn eða menning á Búðardal?
Já, þar er sögusetur og menningarlíf.
Er Búðardalur góður upphafsstaður fyrir Dalina?
Já, bærinn er vel staðsettur fyrir svæðið.