Uppgötvaðu Ísland
Kirkjur Íslands
Hjarðarholt er bær, kirkjustaður og áður prestssetur í Laxárdal í Dalasýslu, gamalt höfuðból sem kemur töluvert við sögu í Íslendingasögum og Sturlungu.
Samkvæmt Laxdælu reisti Ólafur pái Höskuldsson sér bæ á svæði sem þótti reimt því það hafði áður verið í eigu illvirkjans Víga-Hrapps og var sagt að hann gengi aftur, svo að landið lagðist í auðn eftir lát hans. Ólafur lét það ekki á sig fá, byggði bæ sinn og kallaði hann Hjarðarholt. Þar ólust þeir Kjartan Ólafsson og Bolli Þorleiksson upp.
Á elleftu öld bjó Halldór sonur Snorra goða Þorgrímssonar í Hjarðarholti en árið 1117 bjó þar Guðmundur Brandsson prestur, náfrændi Þorgils Oddasonar. Árið 1197 settist svoSighvatur Sturluson að í Hjarðarholti.
Hjarðarholt var síðan prestssetur allt fram á 20. öld en þá var prestbústaðurinn fluttur tilBúðardals. Á meðal presta í Hjarðarholti má nefna Gleraugna-Pétur Einarsson, bróðurMarteins biskups, sem kemur töluvert við sögu siðaskiptanna, og séra Gunnar Pálssonskáld, sem sat staðinn á síðari hluta 18. aldar.
Árið 1899 fann Daniel Bruun stuðlabergslegstein sem notaður var sem þröskuldur í dyrum Hjarðarholtskirkju og kom honum á Þjóðminjasafnið. Hann er talinn elstur íslenskra rúnalegsteina sem varðveist hafa, frá fyrri hluta 14. áldar. Á honum stendur: her : ligr : hallr : arason. Hallur þessi er ekki þekktur úr öðrum heimildum.
Núverandi kirkja í Hjarðarholti var vígð árið 1904 og er teiknuð af Rögnvaldi Ólafssyni arkitekt
Heimild: Sjá hérMynd: Sverrir
Hjarðarholtskirkja Laxárdal
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Hjarðarholtskirkja Laxárdal er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.