Grindavík og nágrenni tjaldsvæðisins
Tjaldstæði

Uppgötvaðu Ísland

Tjaldsvæði Grindavíkur

Ósk
Hef séð

Tjaldsvæði

Sumarið 2009 var nýtt og glæsilegt tjaldsvæði tekið í notkun í Grindavík. Þá var nýtt 200 fermetra þjónustuhús tekið í notkun í maí 2011. Um er að ræða 13.500 fm svæði sem staðsett er við Austurveg 26. Þar eru 42 stæði fyrir húsbíla, fellihýsi og tjaldvagna. Afgirt svæði og sérhannað Fullkomin aðstaða til seyrulosunar. Malbikuð og hellulögð bílastæði í innkomu tjaldsvæðisins. Tvö leiksvæði fyrir börn með rólum, 2 köstulunum, kóngulóarneti o.fl. Í nýja þjónustuhúsinu er aðstaða til að elda, sturtur, þvottahús og aðgangur að interneti.

Aðkoma: Þegar keyrt er inn í bæinn er ekið í gegnum hringtorg og svo beint áfram eftir Víkurbrautinni. Beygt til vinstri við Ránargötu og svo til vinstri inn Austurveg (við kirkjuna).

Aldurstakmark á tjaldsvæðinu fyrir þá sem ferðast einir er 18 ár (20 ár á Sjóaranum síkáta)

Tjaldsvæði - gjaldskrá sumarsins 2012

Verð fyrir fullorðna kr. 950, ókeypis fyrir 14 ára og yngri,
Fjórða hver nótt ókeypis.
Kr. 600 fyrir félaga í félagi húsbílaeigenda og eldri borgara.
Útilegukortið gildir á tjaldsvæðinu.
Hópar/ættarmót greiða eftir samkomulagi.
Rafmagn kr. 750, seyrulosun ókeypis.

Sími umsjónarmanns á tjaldsvæði er 660 7323.

Uppákomur: Bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti, sjómannadagshelgina 1. - 3. júní. Fjölskylduhátíð með glæsilegri dagskrá frá Viðburða- og menningardagskrá Grindavíkurbæjar og Saltfisksetursins; Jónsmessuganga, listsýningar, náttúruvika, gönguhátíð, Þórkötlustaðaréttir o.fl. Sjá www.grindavik.is

Heimild: Sjá hér
Mynd: Grindavík

Aðstaða

Salerni
Sturtur
Þvottaaðstaða
Wi-Fi
Rafmagn
Losun fyrir ferðasalerni

Leyfileg gisting

Tjöld
Húsbílar
Campervans
Hjólhýsi

Önnur aðstaða

Leikvöllur

Opnun, rými og verð

Opið allt áriðNei
Opnar1 mars 2026
Lokar30 nóvember 2026
OpnunartímabilOpið 1. mars til 30. nóvember.
Bókun í boðiNei

Nánari upplýsingar

Vel búið tjaldsvæði í Grindavík fyrir tjöld, húsbíla og ferðavagna. Þar eru salerni, sturtur, rafmagn, Wi-Fi, þvottaaðstaða og losun fyrir ferðasalerni. Tvö leiksvæði eru fyrir börn.

Einkunnir og umsagnir

Tjaldsvæði Grindavíkur

Hentar vel fyrir styttri dvöl.

Algengar spurningar