Uppgötvaðu Ísland
Tjaldsvæði
Tjaldsvæðið í Ásbyrgi er opið frá 15. maí til 30. september. Gestir eru beðnir um að gera vart við sig í Gljúfrastofu áður en tjaldað er, eða strax að morgni ef komið er eftir lokun. Tjaldsvæðið í Vesturdal er opið frá 7. júní til 15. september. Gestir eru beðnir um að gera vart við sig í upplýsingahúsi í Vesturdal áður en tjaldað er, eða strax að morgni ef komið er eftir lokun.
Í Ásbyrgi eru stæði fyrir um 350 tjöld. Ekki er hægt að taka frá tjaldstæði. Stórum hópum er bent á að hafa samband við starfsfólk áður en komið er á svæðið.
Í Ásbyrgi eru ekki ákveðnar flatir fráteknar fyrir húsbíla, hjólhýsi og fellihýsi. Hins vegar eru tenglar fyrir rafmagn á nokkrum flötum og þar er því oftar meira af húsbílum, hjólhýsum og fellihýsum en af tjöldum. Í Ásbyrgi eru 48 tenglar með 1500 W og 16 tenglar með 900 W. Notendur eru beðnir að þekkja orkuþörf rafmagnstækja sinna til að meta hvort að tenglarnir anni orkuþörf.
Í Ásbyrgi er salernisaðstaða í snyrtihúsi nyrst á tjaldsvæðinu og í minna þjónustuhúsi sunnar. Í Vesturdal er snyrtiaðstaða í tveimur þjónustuhúsum. Sturtuaðstaða í stóra snyrtihúsinu. Fjórar sturtur fyrir hvort kyn. Verð: 400 kr/5 mínútur. Í Vesturdal er engin sturtuaðstaða og ekki heitt vatn.
Enginn sérstök eldunaraðstaða er fyrir gesti tjaldsvæðis. Þó eru vaskar undir skyggni við bæði snyrtihúsin á tjaldsvæðinu í Ásbyrgi sem og í Vestudal. Á báðum stöðum eru einnig kolagrill sem gestir mega nota.
Þvottavél og þurrkskápar eru í snyrtihúsi á tjaldsvæði í Ásbyrgi.
Verð:
Heimild: Sjá hérMynd: Vatnajökulsþjóðgarður
Stórt tjaldsvæði með aðstöðu fyrir tjöld, tjaldvagna og hjólhýsi. Á svæðinu eru sturtur, salerni, eldunaraðstaða, þvottaaðstaða, drykkjarvatn og 48 rafmagnstengingar.
Tjaldstæðið í Ásbyrgi
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Tjaldstæðið í Ásbyrgi er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.