Tjaldstæði Þakgil
Tjaldstæði

Uppgötvaðu Ísland

Tjaldstæði Þakgil

Ósk
Hef séð

Þakgil er á Höfðabrekkuafrétti Vestur –Skaftafellssýslu 20 km frá Vík í Mýrdal.

Í Þakgili er rekið tjaldsvæði með smáhýsum . Á tjaldsvæðinu er hellir sem tekur ca. 60 manns í sæti og er hann nýttur sem matsalur og samkomustaður fyrir svæðið. Í hellinum eru kolagrill, borð og bekkir , arin og kertastjakar á hellisveggjunum. Rafmagnið á svæðinu kemur frá vatnsaflstöð sem gangsett var núna í sumar. Það gefur möguleika á að fá rafmagn í fellihýsin og hafa þegar verið settir upp rafmagnsstaurar fyrir það. Einnig eru salerni og sturta fyrir tjaldsvæðið og salerni og eldhús í öllum smáhýsunum. Einnig er tæmingaraðstaða fyrir ferðasalerni á svæðinu.

Þakgil og svæðið í kring hefur uppá að bjóða stórbrotið landslag allt frá sléttlendi til djúpra gilja og sjálfan Mýrdalsjökul. Í fjöllunum sem eru græn upp í top má sjá allskonar kynjamyndir hobbita, álfa, tröll allt eftir hugmyndaflugi hvers og eins. Svæðið er tilvalið til gönguferða hvort sem er á sléttlendi í Remundargili og út að Múlakvísl eða sem er meira krefjandi t.d. uppá Mælifell og fram Barð eða upp að jöklinum og út á Rjúpnagilsbrún en þaðan er ægifagurt útsýni yfir Kötlujökulinn, Huldufjöll og undirlendi suð-austurlands. Þaðan sérst m.a. til Lómagnúps og Vatnajökuls. Síðan er hægt að ganga eftir jöklinum í Huldufjöll en það er krefjandi og krefst sérstaks útbúnaðar og leiðsagnar.

Það er skjólsælt á tjaldsvæðinu þar sem það er umkringt fjöllum. Það eru auðvelt að komast þangað þar sem það eru engar ár eða sprænur yfir að fara og er fært öllun venjulegum bílum og tækifæri fyrir alla að komast í fjallakyrrðina inná hálendinu.

Sími 893-4889

www.thakgil.is

helga@thakgil.is

Heimild: Sjá hér
Mynd: SFjalar

Þekkt fyrir einstakt umhverfi.

Tjaldsvæði

Um Tjaldstæði Þakgil

Aðstaða

Salerni
Sturtur
Rafmagn

Leyfileg gisting

Tjöld
Campervans

Önnur aðstaða

Leikvöllur
Gæludýr leyfð

Opnun, rými og verð

Opið allt áriðNei
Opnar1 júní 2026
Lokar30 september 2026
OpnunartímabilOpið 1. júní til 30. september.
Bókun í boðiNei

Nánari upplýsingar

Skjólgott tjaldsvæði í Þakgili. Þar eru salerni og sturtur ásamt útivaski fyrir uppvask. Sameiginlegur matsalur er í náttúrulegum helli með borðum, bekkjum, kamínu og grillaðstöðu.

Einkunnir og umsagnir

Tjaldstæði Þakgils

Mjög vinsælt meðal útivistarfólks.

Algengar spurningar

Hvar er tjaldstæði Þakgil?
Tjaldstæði Þakgils er á Suðurlandi.
Hvað er tjaldstæði Þakgils?
Það er tjaldsvæði í náttúrulegu landslagi.
Er tjaldstæðið í þéttbýli?
Nei, það er staðsett utan þéttbýlis.
Er tjaldstæðið ætlað tjöldum?
Já, það er ætlað til tjaldsetningar.
Er tjaldstæði Þakgils skipulagt?
Já, um er að ræða skipulagt tjaldsvæði.