Uppgötvaðu Ísland
Tjaldsvæði
Tjaldsvæðið á Seyðisfirði er gróið og rómað fyrir góða þjónustu og hlýlegt umhverfi. Í sumar verður tekið í notkun nýtt þjónustuhús þar sem verður bætt aðstaða fyrir gesti, fleiri salerni og sturtur . Eldunaraðstaða og seturstofa verður í nýja þjónustuhúsinu. Á tjaldsvæðinu eru sturtur, salerni, þvottavél, þurrkari, borðsalur, eldunaraðstaða inni , útigrill og aðstaða fyrir húsbíla, þar með talið rafmagn og hreinsiaðstaða fyrir húsbíla-wc. Tjaldsvæðið er hólfað niður með hávöxnu kjarri og í næsta nágrenni er sjoppa, matvöruverslun, sundlaug, matsölustaðir, íþróttamiðstöð, sauna og heitir pottar.Á Seyðisfirði syngja fossarnir þig í svefn.
Styttri og lengri gönguleiðir, bryggjuveiði og fjöruferð er ánægjuleg afþreying og kostar ekkert annað en úthaldið.
Tjaldsvæði Seyðisfjarðar er aðili að Útilegukortinu, finna má upplýsingar um það hér. Á vef útilegukorsins eru ýmsar gagnlegar upplýsingar um Tjaldsvæði Seyðisfjarðar.
Tjaldsvæðið er staðsett við Ránargötu í hjarta bæjarins. Upplýsingar í síma 472-1521/861-7789
Heimild: Sjá hérMynd: Tjaldstæði Seyðisfjarðar
Tjaldsvæðið er í miðbæ Seyðisfjarðar. Þar eru salerni, sturtur, innieldhús, setustofa, þvottavél, þurrkari og frítt internet. Rafmagn og losun fyrir húsbíla eru einnig í boði.
Tjaldstæði Seyðisfjarðar
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Tjaldstæði Seyðisfjarðar er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.