Hofsós og nágrenni tjaldsvæðisins
Tjaldstæði

Uppgötvaðu Ísland

Tjaldstæði Hofsósar

Ósk
Hef séð

Tjaldsvæði

Frábær staður fyrir þá sem vilja slaka á og hafa það huggulegt.  Tjaldsvæðið er staðsett við hliðina á grunnskólanum á Hofsósi.

Aðstaða: Skjólgott tjaldsvæði með rafmagni, salernum, köldu og heitu vatni. Stutt er í nýju, margverðlaunuðu sundlaugina á Hofsósi. Gaman er að skella sér í nýju sundlaugina á Hofsósi, fá sér Fjóluís á Lónkoti, kíkja í Vesturfarasetrið eða fá sér að borða á Sólvík. Upplýsingar um hvað hægt er að gera í Skagafirði er að finna á www.visitskagafjordur.is.

Tjaldsvæði á Sauðárkróki, Hofsós, Hólum og Varmahlíð eru í samstarfi þannig að hægt er að gista fyrstu nóttina á einhverju af þessum fjórum tjaldsvæðum og fá þá lægra verð næstu nótt á eftir á einhverju af hinum tjaldsvæðunum.  Nauðsynlegt er að framvísu greiðslukvittun af fyrra tjaldsvæði.
Við opnum föstudaginn 18. maí og lokum mánudaginn 17. september.  ATH: Munið að sundmiði fylgir með til borgandi tjaldgesta á Hofsósi.

Verðskrá:

  • 1.000 kr fyrir fyrstu nóttina
  • 800 kr fyrir næstu nætur.
  • Elli og örorkuþegar:  800 kr
  • Elli og örorkuþegar:  600 kr fyrir næstu nætur
  • Rafmagn:  600 kr
  • Aðeins greitt fyrir 12 ára og eldri.
  • Sturta:  250 kr
  • Þvottavél:  400 kr
  • Þvottaefni:  100 kr pr vél
  • Þurrkari:  500 kr
  • Sjá nánar á heimsíðunni

Heimild: Sjá hér
Mynd: Tjoldumiskagafirdi.is

Aðstaða

Salerni
Sturtur
Heitt vatn
Rafmagn
Losun fyrir ferðasalerni

Leyfileg gisting

Tjöld
Húsbílar
Campervans
Hjólhýsi

Önnur aðstaða

Leikvöllur
Gæludýr leyfð

Opnun, rými og verð

Opið allt áriðNei
Opnar13 maí 2026
Lokar12 september 2026
OpnunartímabilSumaropnun, um miðjan maí fram í miðjan september.

Nánari upplýsingar

Skjólgott tjaldsvæði með salernum, heitu og köldu vatni, sturtuaðstöðu, rafmagni og losun fyrir ferðasalerni. Leiksvæði er við svæðið.

Einkunnir og umsagnir

Tjaldstæði Hofsósar

Góð aðstaða fyrir ferðalanga.

Algengar spurningar