Málmey
Eyjur

Uppgötvaðu Ísland

Málmey

Ósk
Hef séð
TegundEyja
ByggðNei

Málmey er eyja á Skagafirði, og skilur Málmeyjarsund á milli hennar og Þórðarhöfða. Hún er 7 km löng og 1 km á breidd en mjókkar til endanna. Hún er fremur láglend, einkum að sunnan, en hækkar því meir, sem norðar dregur og er hæst 156 m. Þar heitir Kaldbakur. Suðurendi hennar er klettastapi sem heitir Kringla.

Eyjan kemur við sögu í Sturlungu því þangað fór Guðmundur Arason biskup með mönnum sínum þegar Tumi Sighvatsson hrakti hann frá Hólum og þaðan fóru svo menn hans til Hóla í janúar 1222 og drápu Tuma. Eyjan var lengst af í byggð, enda ágæt bújörð og örstutt á góð fiskimið. Helsta vandamálið var vatnsleysi en engin uppspretta er ofanjarðar en vatn fékkst úr brunni. Bærinn brann á Þorláksmessu 1950ofan af 14 manns, þar af 10 börnum, og hefur Málmey verið í eyði síðan.

Sagt er að álög séu á Málmey. Þar má enginn búa lengur en 20 ár. Aldrei má hestur koma þangð, því þá verður húsfreyjan brjáluð, segja sumir, en oftar er þó sagt að hún hverfi og þannig var um húsfreyjuna semHálfdan Narfason prestur á Felli reyndi að sækja í Hvanndalabjarg; hún hvarf tuttugustu jólanóttina sem hún bjó í eynni. Mýs þrífast þar ekki, hvað sem til þess kemur, og hestar hafa aldrei mátt vera þar.

Heimild: Sjá hér

Aðgengileg
Bátur nauðsynlegur
Fuglavarp
Sjávarhamrar

Jarðfræði

Málmey er bergeyja í Skagafirði þar sem sjávarrof hefur mótað bratta kletta og strandlínu.

Náttúra

Eyjan einkennist af grónu yfirborði, sjávarbjörgum og fuglalífi.

Besti árstími

Sumar

Heimsóknarráð

Aðgengi að Málmey er yfir sjó og lending getur verið háð sjólagi. Sýnið fuglalífi sérstaka tillitssemi á varptíma.

Síðast staðfest 16 september 2026

Einkunnir og umsagnir

Málmey

Áhugaverð náttúrusvæði.