Þríhnúkagígur
Hellar

Uppgötvaðu Ísland

Þríhnúkagígur

Ósk
Hef séð
TegundEldfjallagígur / kvikuhólf
Dýpt212 m
ErfiðleikastigMiðlungs
Göngutími45 mín.
Gönguvegalengd3 km

Þríhnúkagígur (63.99866, -21.698881) er gígur sem liggur í norðaustasta Þríhnúknum, rúma 4 km vestur af skíðasvæðinu í Bláfjöllum. Niður frá gígopinu gengur gríðarmikill gíghellir, Þríhnúkahellir. Hann er eitt stærsta og merkasta nátturufyrirbæri sinnar tegundar á jörðinni.

Gígopið er þverhnípt og um 4 sinnum 4 metra stórt. Fyrst var sigið niður í gíghellinn 1974, og 1991 var hann svo kannaðar ítarlega og kortlagður. Þríhnúkahellir er flöskulaga ketill sem er um 150 þúsund rúmmetrar að stærð. Botninn er á stærð við fótboltavöll og er 120 metra undir yfirborði jarðar, og þaðan liggja svo gígrásir niður á um 200 metra dýpi.

Í ljósi þess hvað hann þykir sérstakur hafa verið settar fram hugmyndir um hvernig megi bæta aðgengi að honum, sem fæli m.a. í sér að bora göng inn í hann miðjan og byggja útsýnispall inni í honum.

Heimild: Sjá hér
Mynd: Clip2

 

Leiðsögn nauðsynleg
Hjálmur
Sérbúnaður
Opið almenningi
Árstíðabundið aðgengi
Aðgangseyrir
Bókun nauðsynleg

Jarðfræði

Einstakt opið kvikuhólf þar sem gestir fara niður um gígop með lyftu.

Aðgengi

Um 3 km ganga er frá mótsstað að gígnum. Gestir fara um 120 m niður í opnu lyftukerfi.

Síðast staðfest 16 september 2026 Heimild

Einkunnir og umsagnir

Þríhnúkagígur

Einstök upplifun.

Algengar spurningar