Uppgötvaðu Ísland
Kirkjur Íslands
Kirkja hefur verið á Þingvöllum frá því skömmu eftir kristnitöku. Sögur herma að Ólafur helgi Noregskonungur, sem kom til valda árið 1015 hafi gefið sérstakan kirkjuvið til að reisa kirkju á Þingvöllum. Ekki er vitað með vissu hvar sú kirkja stóð. Hald manna er að fyrrum hafi verið tvær kirkjur á Þingvöllum; þingmannakirkja og búendakirkja. Hafi sú síðarnefnda staðið í kirkjugarðinum. Alexíus Pálsson, síðar ábóti í Viðey var prestur á Þingvöllum skömmu eftir 1500. Sagnir eru um að hann hafi látið flytja kirkjuna úr garðinum á þann stað sem kirkjan stendur nú. Við uppgröft vestan við kirkjuna í maí 2009 kom í ljós hleðsla frá því um 1500 sem staðfestir væntanlega að kirkja var þar þá.
Kirkjan sem nú stendur á Þingvöllum, var byggð árið 1859 og vígð á jóladag það ár. Hún kostaði 526 ríkisdali og fimm skildinga. Fyrstu áratugina var kirkjan bikuð að utan, en var máluð skömmu fyrir 1900.
Heimild: Sjá hér
Þingvallakirkja
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Mikilvægur sögustaður Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.