Uppgötvaðu Ísland
Golfklúbbur Selfoss var stofnaður 24.janúar 1971. Svarfhólsvöllur er þriðji völlur klúbbsins frá byrjun og hefur verið í notkun frá árinu 1986. Allan þennan tíma hefur stöðugt verið unnið að endurbótum og breytingum á vellinum. Mestu breytingar frá upphafi hafa þó líklega verið teknar í notkun vorið 1999, með mörgum nýjum teigum og flötum.
Haustið 2008 voru gerðar breytingar á brautum 2, 3 & 4. 2009 er völlurinn því nokkuð breyttur. Flötin á 2. braut er að verða fullgróin og er komin í leik. Nýjir teigar eru á 3. og 4. braut. Vallarstarfsmenn GOS munu kappkosta að völlurinn nái aftur að verða með betri 9 holu völlum landsins.
Í golfskála GOS er veitingasala Matur og músík sem býður upp á létta heita og kalda rétti, sælgæti og hentugt snakk í golfpokann. Margs konar drykkir til sölu (vínveitingaleyfi).
Golfvörur: Í skála eru seldar golfvörur svo sem boltar, hanskar, tí og flatarmerki.
Önnur þjónusta:
Æfingasvæði, Kerru- og kylfuleiga, Aðgangur að kúluvél
Flatargjöld skal greiða í golfskála.
Sumaropnunartími (1. maí til 15. október) alla daga frá kl.10-22 og um helgar kl.8-22. sími 482 3335.
Heimild: Sjá hérMynd: Golfklúbbur Selfoss
Bóka rástíma
Vefur golfvallar
Svarfhólsvöllur
JPEG eða PNG, að hámarki 5 MB. Myndin er minnkuð í mest 1600 px.
Ábendingin hefur verið send og verður yfirfarin.
Augnablik og útsýni frá þessum einstaka stað.
Fleiri eftirminnilegir áfangastaðir skammt undan.
Uppgötvaðu fleiri áfangastaði í sama flokki.
Skráðu þig inn til að gefa einkunn
Svarfhólsvöllur er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.
Við notum valfrjálsar greiningarkökur til að skilja hvernig vefurinn er notaður.