Laugardælakirkja
Kirkjur

Uppgötvaðu Ísland

Laugardælakirkja

Ósk
Hef séð

Kirkjur Íslands

LandsvæðiSuðurland
ByggingarefniSteinsteypa

Laugardælakirkja er kirkja að Laugardælum í Hraungerðishreppi (nú Flóahreppi). Hún var vígð 1965. Kirkjan er steinsteypt og alls 300 fermetrar að flatarmáli. Í henni er pípuorgel og kirkjubekkirnir rúma 70 manns í sæti.

Bjarni Pálsson, byggingarfulltrúi á Selfossi,teiknaði kirkjuna, en hann teiknaði einnig Selfosskirkju. Sigfús Kristinsson byggingameistari sá um smíði kirkjunnar.

Kaþólskar kirkjur að Laugardælum voru helgaðar Guði, Maríu mey og heilagri Agötu. Kirkjan tilheyrir Hraungerðisprestakalli.

Kirkjan komst í fréttirnar í janúar 2008, þegar Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistari í skák, var jarðsettur þar í kyrrþey.

Heimild: Sjá hér
Mynd: A.More.S

 

Sjá heimild Fleiri kirkjur á Suðurlandi

Einkunnir og umsagnir

Laugardælakirkja

Laugardælakirkja er hluti af fjölbreyttri náttúru, menningu og afþreyingu Íslands.

Algengar spurningar